Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:25 0 0°C
Laxárdalsh. 15:25 0 0°C
Vatnsskarð 15:25 0 0°C
Þverárfjall 15:25 0 0°C
Kjalarnes 15:25 0 0°C
Hafnarfjall 15:25 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 08. maí 2016 - kl. 09:44
Maínöldur

Það vantar fleiri bílastæði við kirkjuna okkar hér á Blönduósi. Þegar lóðin kringum kirkjuna var hönnuð var þar eins og annarsstaðar í bænum lögð aðal áhersla á grasflatir. Þegar bílastæði við kirkjuna skortir, eins og gerist oft við fjölmennar útfarir, þurfa kirkjugestir óhjákvæmilega að leggja bílum sínum á grasflatirnar við kirkjuna nú eða í bílastæði veitingastaðarins B&S. Ekki get ég ímyndað mér að forsvarsmenn fyrirtækisins séu ánægðir með það en eru þeir í fullum rétti að banna öðrum en viðskiptavinum sínum að nota stæðin. Lausnin á þessu vandamáli er að minnka grasflatir og fjölga bílastæðunum við kirkjuna.

Mikið af ferðamönnum, jafnt innlendum sem erlendum sækja Snæfellsnes heim jafnt sumar sem vetur enda er þar um fallegt landsvæði að ræða og margt þar að sjá. Þar er sannarlega unnið markvisst að því að laða að og þjónusta ferðamenn og  hendur látnar standa fram úr ermum  og nú nýlega hafa þeir stofnað Svæðisgarð Snæfellsness og er hugsunin með því að samhæfa og stjórna aðkomu ferðmanna um svæðið, jafnt sumar sem vetur.  Það eru  fimm sveitafélög á nesinu, ásamt nokkrum félagasamtökum  sem taka höndum saman um að efla ferðamennsku, matvælaframleiðslu  og menningu á svæðinu.  Þeir vilja enga stóriðju á nesinu og hafa friðað ákveðin svæði, þar sem ferðamönnum er ekki hleypt að.  Vissulega athyglisverð samvinna þarna á ferðinni. Hægt er að horfa á viðtal við framkvæmdastjóra Svæðisgarðsins á N4, þætti „að vestan“ frá 19.apríl. Skylduáhorf fyrir þá sem vinna að stefnumótun þessara mála fyrir Húnvetninga.

Það hefur eflaust glatt margan Húnvetninginn að lesa í fjölmiðlum  að loks eigi að fara að rannsaka rústir klaustursins forna á Þingeyrum.  Samkvæmt fréttinni gerðu  fornleifafræðingar forkönnun í fyrra sem, ásamt fyrri athugunum  þykir gefa vísbendingar um að skammt norðan við bæjarhúsin á Þingeyrum séu  miklar minjar.  Klaustrið á Þingeyrum var rekið frá árinu 1133 til 1551, lengur en nokkurt annað klaustur á landinu og má leiða að því líkum að þar geti margt merkilegt komið í ljós þegar farið verður að rannsaka svæðið.

Ég sá í Morgunblaðinu 26.apríl s.l. frétt þess efnis að til stæði að setja senda á nokkrar gæsir hér á landi  í sumar, svo hægt væri að fylgjast með ferðum þeirra í milli landa vor og haust.  Allt kostar peninga og  mun einn sendir  kosta um 230 þúsund krónur. Margskonar upplýsingar um ferðir gæsanna vina okkar fást með  þessum sendum og  mikið væri gaman ef við Blönduósingar, einstklingar og fyrirtæki tækjum okkur saman og söfnuðum peningum svo hægt væri að merkja að minnsta kosti eina gæs sem dvelur sumarlangt í gæsabænum Blönduósi en bregður sér svo til Skotlands til vetursetu þegar haustar að hér hjá okkur.

Ungur Blönduósingur, Hrafnhildur Una Þórðardóttir nemi í MA ritar athyglisverðan pistil á Húnahornið þar sem hún lýsir efasemdum um þá hugmynd að byggja álver við Hafursstaði. Það er hárrétt hjá henni að litlar sem engar rannsókir hafa verið gerðar á jarðfræði- og gróðurfarslegum afleiðingum álvers á þessum stað, fyrir nú utan það að ekkert er fast í hendi með raforku til svona verksmiðju. Ég tek undir með greinarhöfundi að engan þurfi að undra þó vonir hafi kviknað hjá íbúum hér á svæðinu um atvinnuuppbyggingu samfara svona framkvæmdum því hér vantar sárlega atvinnu, hingað vilja margir flytja úr húsnæðisokrinu í Reykjavík, en atvinnuna vantar. Það er alltaf gaman að heyra skoðanir unga fólksins okkar og mættu fleir láta heyra í sér. Ég þakka Hrafnildi Unu pistilinn, henni er þetta mál hugleikið, enda nemandi í vist- og umhverfisfræði við MA.

Og eitt svona stutt nöldur í lokin. Ég hef tekið eftir því þegar rökkva tekur að fjöldi ljósastaura á Blönduósi gefa enga lýsingu. Vandamálið er líklega að perurnar í þeim eru ónýtar. Þegar það gerist þarf að skipta um perurnar. Góð lýsing er öryggismál. Þrátt fyrir að sumarið sé að koma með allri sinni birtu.

Við höfum beðið róleg eftir sumrinu og eigum við ekki að trúa að nú sé það komið til að vera.  Við skulum treysta því  að við fáum marga heita ljúfa sumardaga  og í þeirri trú kveð ég að sinni.

Nöldri.

Höf. Nöldri
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið