Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Prjónasnillingar bæjarins gleðja heimamenn og ferðafólk annað sumarið í röð með „prjónagraffi“, sem þær hengja á ljósastaura bæjarins. Nú setja þær kalla og kellingar í lopapeysum á hvern staurinn af örðum og segja gárungarnir að sjá megi svip ýmissa bæjarbúa á andlitunum. Það er vel við hæfi að prjónaskapur sé í hávegum hafður í bænum í tilefni Prjónagleðinnar, alþjóðlegrar prjónaráðstefnu sem haldin er hér um þessar mundir.
Eftir kalt vor hefur veðrið leikið við okkur síðastliðnar tvær vikur. Gróðurinn hefur tekið við sér í sólinni og létt er yfir mannfólkinu. Það eru mikil umskifti sem orðið hafa við gömlu vélsmiðjuna, en til viðbótar við veitingastaðinn sem þar hefur verið rekinn í nokkur er þar nú komið fullkomið og snyrtilegt bílaverkstæði, ásamt verslun með blóm og ýmsan varning. Þegar lagfæringum á framhlið hússins lýkur hefur húsið tekið algjörum stakkaskiptum og sómir sér vel við þjóðveg 1.
Ljótt er að sjá hvernig Blöndubrúin lítur út eftir að ekið var á hlífðarplast við göngustíginn á brúnni. Ekki kæmi mér það á óvart að brúin fengi að vera svona útlits í sumar og ekki minnkar slysahætta á brúnni við þetta, enda hafa borist þau skilaboð frá Vegagerðinni að byrjað verði á lagfæringum við brúna í haust. Samkvæmt því sem sagt var á borgarafundi sem haldinn var, að mig minnir í mars í vetur, áttu endurbætur við brúna að hefjast strax í sumar og þá yrði hringtorgið einnig stækkað til muna og blikkljósið ofan við Ámundakinnina yrði komið í lag innan nokkurra daga. Ekkert af þessu hefur gerst og þá má ég til með að geta þess að tunnan undir pappír, sem koma átti á hvert heimili í maí hefur ekki sést ennþá a.m.k. ekki í minni götu. Þá geri ég mér litlar vonir um að götumerkingar og ýmsar upplýsingar til ferðamanna sem rætt var um á þessum fundi sjá dagsins ljós þetta árið. Því ber svo aftur á móti að fagna að komin er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn með aðsetur í bóka- og skjalasafnshúsinu. Það er löngu tímabært að þeir sem eftir því leita eigi greiðan aðgang að öllum upplýsingum um þetta svæði á einum stað. Ég hef mikla trú á nýjum starfsmanni upplýsingamiðstöðvarinnar og að þar verði staðið vel að verki.
Gaman var að heyra af stórgóðri laxveiði strax á fyrsta degi í Blöndu og vonandi verður áin gjöful á laxinn í ár eins og í fyrra sumar. Mér er sagt að lítið sé um að heimamenn kaupi sér veiðileyfi í Blöndu og setur fólk eflaust fyrir sig hátt verð á veiðileyfum, svo mest er um menn misjafnlega langt að komna sem veiða í ánni. Það er því ekki skrítið að veiðimennirnir furði sig á staðsetningu veiðihússins, langt upp í Langadal. Þvílík skammsýni og fádæma endalaus hrepparígur sem ómögulegt virðist að losna við, að byggja ekki húsið í Kúagirðingunni, rétt við aðal veiðistaðina og þjónustuna hér á Blönduósi.
Ég hef þá trú að sumarið verði gott, eitthvað í líkingu við þessa fyrstu daga júní mánaðar. Framundan eru 17. júní hátíðarhöld, Smábæjaleikar og svo Húnavaka, fyrir nú utan allar hátíðirnar í sveitarfélögunum hér allt í kring, svo ég held að enginn þurfi að láta sér leiðast í sumar.
Njótið sumarsins
Kveðja, Nöldri.
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
|
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
|
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
|
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:16
Stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar og veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga hafa skrifað undir samning um að Hvammstangavöllur í Kirkjuhvammi beri nafn Sjávarborgar í sumar. Þetta er fyrsta sinn sem knattspyrnuvöllurinn ber nafn styrktaraðila, að því er segir á Aðdáendasíðu knattspyrnuliðsins Kormáks-Hvatar á Facebook. Í sumar fara fjórir meistaraflokksleikir fram á Sjávarborgarvellinum, auk leikja í yngri flokkum.
|
Fréttir | 12. apríl 2024 - kl. 13:25
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu var haldinn í vikunni og að því er fram kemur á facebooksíðu félagsins var mæting félaga mjög góð, bæði hjá gömlum og nýjum. Þar segir að starf félagsins gangi mjög vel sem og rekstur þess. Húsnæði félagsins hafi tekið til sín mikinn tíma félaga en nú sé markmiðið að efla starfið enn frekar. Ný stjórn var kosin á fundinum og var þeim sem stigu til hliðar færðar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
|
Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 15:20
Ekki liggur fyrir hvenær boðað verður til íbúakosninga um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar en til stóð að hún færi fram í þessum mánuði og að sameining tæki gildi 1. júní næstkomandi, yrði hún samþykkt. Samstarfsnefnd um sameininguna, sem skipuð er átta fulltrúum, fjórum frá hvoru sveitarfélagi, hefur það verkefni að skipuleggja sameiningarvinnuna, m.a. að setja upp verk- og tímaáætlun og leggja fram sameiningartillögu.
|
Fréttir | 11. apríl 2024 - kl. 14:48
Kvenfélagið Freyja færði nýverið Grunnskóla Húnaþings vestra hjartastuðtæki að gjöf. „Gjöfin mun vonandi aldrei koma að notum en við erum þó svo þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem er mikilvæg viðbót í öryggisbúnað skólans,“ segir á vef hans. Höfðaskóli á Skagaströnd fékk líka gjöf nýverið, frá foreldrafélagi skólans, en það voru tvær tifsagir, „sem munu koma sér vel líkt og styrkurinn til bókakaupa gerði í haust,“ segir á vef skólans.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |