Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:18 0 0°C
Laxárdalsh. 00:18 0 0°C
Vatnsskarð 00:18 0 0°C
Þverárfjall 00:18 0 0°C
Kjalarnes 00:18 0 0°C
Hafnarfjall 00:18 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 24. júní 2016 - kl. 14:26
Stjórn SSNV fagnar tillögum um fjármálaáætlun og fjármálastefnu stjórnvalda

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fagnar framlagningu tillagna til þingsályktana um fjármálaáætlun fyrir árin 2017-2021 og fjármálastefnu 2017-2021 sem lagðar voru fram á Alþingi í lok apríl síðastliðin. Tillögurnar fjalla um að stjórnvöld fylgi fjármálaáætlun um opinber fjármál fyrir árin 2017-2021 sem byggð er á fyrirliggjandi fjármálastefnu fyrir sama tímabil og skilyrðum hennar. Fjárlaganefnd Alþingis óskaði eftir umsögnum um tillögurnar og hefur stjórn SSNV veitt umsagnir um þær.

Í umsögnum stjórnar SSNV segir að löngu sé tímabært að áætlanir ríkissjóðs bæði, útgjalda og tekjuhlið, taki til lengri tíma en eins árs í senn, rétt eins og áætlanir sveitarfélaga. Hér sé fyrsta skrefið stigið í þeirri viðleitni að áætlanir stjórnvalda þegar kemur að fjármálum verði fyrirsjáanlegri og að ríkisstjórnir á hverjum tíma gefi strax í upphafi valdatíðar sinnar tóninn um það hvert þær vilja stefna með fjármál ríkisins samanber lög um opinber fjármál. Stjórn SSNV tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillögurnar þar sem flest málefnasvið hafi bein eða óbein áhrif á sveitarfélögin.

Í umsögn stjórnar SSNV er eftirfarandi tilmælum komið á framfæri.

Samgöngumál
„Í samgönguáætlun 2015-2018 sbr. þingskjal 1061 mál nr. 638 er einungis gert ráð fyrir að um 50 milljónum verði varið til stofn- og tengivega á Norðurlandi vestra eða um 0,0028% af þeim tæplega 18 milljörðum sem veita á samkvæmt áætluninni til stofn- og tengivega á landinu. Á slíka skiptingu verður ekki fallist enda hefur álag á vegakerfið á Norðurlandi vestra aukist mjög á undanförnum árum. Viðhaldi vega er einnig mjög ábótavant í landshlutanum. Veruleg þörf er á auknu fjármagni í þennan málaflokk í landshlutanum.“

Byggðamál
„Stjórn SSNV fagnar nýjum lögum um byggða- og sóknaráætlanir og þeirri meginstefnu að landsmenn skuli hafa jöfn tækifæri á sem flestum sviðum án tillits til búsetu. Mikilvægt er að mótuð verði stefna um það hvaða þjónustu er unnt að veita öllum íbúum landsins í heimabyggð og hvaða þjónustu er ekki mögulegt, af einhverjum ástæðum að veita í heimabyggð. Dæmi um þjónustu sem auðvelt ætti að vera að veita öllum landsmönnum án tillits til búsetu er menntun. Það er óþolandi með öllu að íbúar landsbyggðarinnar sem kjósa að afla sér æðri menntunar skuli þurfa að flytjast búferlum til þess að það sé mögulegt. Með nútímatækni er í raun hægt að kenna nánast allt í fjarnámi. Líklega væri það ein áhrifaríkasta byggðaaðgerð sem völ er á, til lengri tíma litið ef Háskóla Íslands yrði gert skylt að kenna nánast allar greinar í fjarnámi. Grunnforsenda þess að svo megi verða er að allir landsmenn hafi aðgang að góðu netsambandi. Stjórn SSNV fagnar þeim áherslum sem lagaðar hafa verið með verkefninu Ísland ljóstengt og því metnaðarfulla markmiði að koma öllu landinu í gott netsamband á árinu 2020 og hvetur til þess að auknir fjármunir verið lagðir til verkefnisins svo að tímaáætlun þess standist.  Jafnframt hvetur stjórn SSNV til þess að Háskóla Íslands verði gert skylt og kleift að þjóna öllum landsmönnum hvar sem þeir eiga heima.

Stjórn SSNV fagnar því að auknu fjármagni skuli varið til byggðamála og sóknaráætlana en bendir jafnframt á að jafna þarf aðstöðu fólks og fyrirtækja ekki síst með tilliti til þess hvaða möguleika þessir aðilar hafa til að nýta þjónustu opinberra aðila og hvaða kostnað þeir bera af því að leita þjónustunnar. Staðreyndin er sú að það er í langflestum tilfellum dýrara fyrir fólk og fyrirtæki á landsbyggðinni að nýta þá þjónustu sem veitt er af ríkinu og kostuð af skattfé, þess vegna þarf að skoða það alvarlega að jafna þann mismun í gegnum skattkerfið. Sem dæmi má nefna að engin fæðingarþjónusta er á Norðurlandi vestra og verða flestir íbúar Norðurlands vestra að leita heilbrigðisþjónustu í annan landshluta af og til.“

Fjármál sveitarfélaga
„Stjórn SSNV leggur áherslu á að sveitarfélögum verði tryggðar auknar tekjur vegna vaxandi útgjalda þeirra vegna fjölgunar ferðamanna. Auk þess að tryggt verði fjármagn til að mæta  auknu álagi á innviði s.s. löggæslu og heilbrigðisþjónustu og ekki síst vegakerfið.“

Samgöngumál
„Stjórn SSNV tekur undir áhyggjur þær er koma fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um almenningssamgöngur. Tryggja þarf aðgang landsmanna að almenningssamgöngum en bent er á að samningar ríkisins og landshlutasamtaka renna út í árslok 2018. Til þess að verkefnið geti haldið áfram er mikilvægt að fjármögnun verkefnisins verði betur tryggð en raunin hefur verið til þessa og að nýtt frumvarp um farþegaflutninga á landi líti dagsins ljós. Mikilvægt er að stefna ríkisvaldsins sé skýr og að henni sé fylgt eftir á þann hátt að friður geti verið um þetta mikilvæga verkefni.“

Heilbrigðismál
„Stjórn SSNV ætlast til þess að hluta af þeim auknu fjármunum sem áætlað er að leggja til heilbrigðismála verði varið til að efla þær einingar heilbrigðiskerfisins sem staðsettar eru á Norðurlandi vestra. Með auknum straumi ferðamanna hefur álag á þessar stofnanir stóraukist enda margfaldast fjöldi þeirra sem „gista“ Norðurland vestra yfir ferðamannatímann.“

Sem fyrr segir fagnar stjórn SSNV þingsályktunartillögunum og þeirri breytingu sem orðin er á áætlanagerð fjármála ríkisins og styður þær heilshugar að því gefnu að Alþingi að koma til móts við þær ábendingar sem að framan eru raktar.      

Höf. rzg
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Glaðheimar
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið