Fréttir | 23. júní 2016 - kl. 15:44
Kormákur/Hvöt gegn Augnabliki á Blönduósvelli föstudaginn 24. júní --LEIKNUM FRESTAÐ --
Verður 27. ágúst kl. 14:00 á Blönduósvelli

Föstudaginn 24. júní mun stórliðið Kormákur/Hvöt taka á móti liði Augnabliks á Blönduósvelli og hefst leikurinn kl. 20:00. Hver vill ekki sjá leikmenn á borð við Heimi G., Hödda Gylfa, Óla Sveinbjörns, Sigga Bjarna, Óskar Snæ eða Hámund Örn spretta úr spori á gullfallegum Blönduósvelli.

Frítt er á völlinn en leikurinn er í boði Magga Málara sem er nú þessa dagana staddur á Orkumótinu í Vestmannaeyjum en mun senda sterka strauma norður í land á föstudaginn.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga