Kvennaskólinn á Blönduósi
Fréttir | 23. júní 2016 - kl. 11:32
Listamönnum við Textíllistamiðstöðina í Kvennaskólanum fjölgar stöðugt og er staðan orðin þannig að uppselt er í gistingu yfir sumarmánuðina. Rík krafa er hjá listamönnum að bæta verkaðstöðu við listamiðstöðina vegna þess að rými í Kvennaskólanum hentar illa fyrir ýmsa textílvinnu. Mikill vilji er meðal þeirra sem koma að listamiðstöðinni að fara í framkvæmdir á bílskúrunum fyrir framan Kvennaskólann og breyta því húsnæði í vinnuaðstöðu fyrir listafólk sem dvelur í listamiðstöðinni.
Þetta kom fram hjá Jóhönnu Pálmadóttur, framkvæmdastjóra Textílseturs Íslands ses, Erlu Gunnarsdóttur, starfsmanni Textílsetursins og Katharina Schneider, framkvæmdastjóra Þekkingarsetursins þegar þær mættu á fundi Byggðasamlags um menningu og atvinnumál í Austur-Húnavatnssýslu.
Textíllistamiðstöð í Kvennaskólanum er samstarfsverkefni Þekkingarsetursins og Textílsetur Íslands síðan 2012. Listamiðstöðin er áætluð textíllistamönnum frá öllum heiminum og býður upp á gisti- og vinnuaðstöðu í skapandi umhverfi. Listamennirnir hafa aðgang að Heimilisiðnaðarsafninu og geta stundað þar rannsóknarvinnu. Þeir skipuleggja og taka þátt í ýmsum menningarlegum viðburðum og samstarfsverkefnum á svæðinu og setja þannig svip á bæjarlífið.
Á fundinum var einnig lagt fram til kynningar erindi frá Heimilisiðnaðarsafninu en í því kemur fram að veigamiklar forsendur fyrir rekstraráætlun ársins 2016 hafa brugðist og vantar tvær milljónir króna til rekstur safnsins á árinu. Ástæðurnar eru fyrst og fremst þær að framlög frá Atvinnuleysistryggingasjóði til safnsins féllu niður vegna breyttra reglna sjóðsins og styrkur frá Safnasjóði er minni en gert var ráð fyrir.