Hólmavíkurkirkja. Ljósmynd: kirkjukort.net
Hólmavíkurkirkja. Ljósmynd: kirkjukort.net
Pistlar | 18. júlí 2016 - kl. 14:14
Stökuspjall: Að læra af þeim sem lífsins tónum náðu
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Það styttist í tveggja ára afmæli vísnavefsins og nú skal hafa það ráð að tína fram nokkrar tévísur, Þorleifur frá Hjallalandi orti:

Til að binda endi á
allt sem myndar trega
fáðu í skyndi foldagná
fríða og yndislega.

Vígþór frá Hellu, skólastjóri á Hólmavík og Varmalandi yrkir:

Til að mennta sig þarf mannsins ríka vilja,
í menntun felst að temja sig og skilja,
og læra af þeim sem lífsins tónum náðu
og líka þeim sem sannleiksgildin skráðu.
En umfram allt þú virðir vitund þína
og verðugt ljós þitt öðrum nái að skína.

 Annar Strandamaður, Stefán Gíslason, yrkir fallega til konu sinnar:

       Til Bjarkar
Loksins skal ég ljóða á þig
lífs míns eina kona.
Ég á þig og þú átt mig.
Það er bara svona.

Með tröllavísu lýkur þessu spjalli, sú kemur úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar, en hann var prestssonur frá Hofi á Skaga og þar verður messað og hans minnst sunnudaginn 21. ágúst:

Takið úr mér svangann og langann
nú vil ég að gilinu ganga.
Takið úr mér svilin og vilin
fram ætla eg í Mjóafjarðargilið

Tévísur: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?st=t1
Æviágrip JÁ eftir Pálma Pálsson: http://stikill.123.is/blog/2016/06/21/750654/

Eldra stökuspjall
Undir penna sestur: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=12944
Vatn í læk og á http://www.huni.is/index.php?cid=12820
Öxlin gnæfir yfir Þingið: http://www.huni.is/index.php?cid=12707

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga