Nöldrið | 10. ágúst 2016 - kl. 09:17
Ágústnöldur

Nú eru 7 ár síðan, eða 15. ágúst 2009, að á forsíður Morgunblaðsins stór stórum stöfum „Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi.“ Í greininni er sagt „að fátt geti komið í veg fyrir að hafist verði handa við framkvæmdir síðar á þessu ári.“ Þá er sagt „að reistar verði tvær risavaxnar byggingar og verður stærð þeirra slík að í þeim gætu rúmast 8 knattspyrnuvellir. Reikna má með 2000 starfsmönnum á byggingatíma gagnaversins.“ Þannig var það nú. Ekki veit ég hversu mörg gagnver hafa risið á Íslandi síðan þessi grein birtist í Morgunblaðinu, en veit að þeim hefur verið valinn staður á suðvestur horninu, að sjálfsögðu. En hvað gerðist með gagnaverið sem átti að setja niður hér? Hvað klikkaði? Talað var um það á sínum tíma að mikið undirbúningsstarf hefði  farið fram vegna þessara fyrirhuguðu framkvæmdar og allt klárt til að hefjast handa, en svo.......ekkert frekar enn fyrri daginn.

Veðrið lék aldeilis við okkur Húnavökuhelgina og fannst mörgum komi tími til að fá sól og blíðu á þessari bæjarhátíð okkar, eftir leiðinda veður margar undangengnar Húnavökur. Allir held ég að hafi notið helgarinnar og sigurvegarar í götuskreytingum voru íbúar Urðarbrautar sem skaraði fram úr svo eftir var tekið. Nokkrum dögum fyrir Húnavöku þegar ég hlustaði á morgunþátt á Rás2, en þar er  gjarnan sagt frá bæjarhátíðum vítt og breytt um landið, voru þáttastjórnendur að kvarta undan því að ekki væri sagt frá Húnavöku, bæjarhátíð Blönduósinga á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga, en þar sögðu þau mætti  finna upplýsingar um hinar ýmsu bæjarhátíðir og í þann fróðleik leitaði fjölmiðlafólk. Af Húnavöku höfðu þau frétt fyrir tilviljun og leituðu sér upplýsinga á Húna.is og gátu því sagt  frá dagskrá helgarinnar. Það er eins og gleymist stundum að koma okkur á framfæri. Fréttablaðið birti aukablað í byrjun júlí um bæjarhátíðir á landinu og ekki var Húnavakan þar á meðal.

Þess ber að geta sem vel er gert. Nú er tunnan með bláa lokinu komin heim að hverju húsi og vonandi verður fólk duglegra en nokkru sinni að flokka sitt rusl. Það er satt að segja með ólíkindum hvað mikið rusl kemur frá ekki stærra bæjarfélagi en okkar. Ég kem af og til á gámasvæðið og þar er alltaf fullt af fólki  í sömu erindagjörðum og ég  þ.e. að henda rusli. Þar eru haugar af rafækjum allskonar, gámar með pappír og plasti, timbur, járnarusl og garðaúrgangur. Þó sjáum við kannski minnst af ruslinu, því heimilissorpið og umbúðirnar með skilagjaldinu fara annað. Hvernig var þetta eiginlega áður en farið var að taka á móti flokkuðu rusli? Og hvernig á maður að ímynda sér að þetta hafi verið þegar farið var með ruslaföturnar úr eldhúsinu niður að Blöndu og sturtað þar úr þeim út í ána, eins og mun hafa verið gert fyrir hálfri öld eða svo.

Þá ber að þakka fyrir annað loforð sem efnt hefur verið, en blikkljósið ofan við Ámundakinnina er komið í lag og þar blikka líka tölustafir sem sýna á hvaða hraða ekið er. Vonandi að þetta hægi aðeins á umferðinni gegnum bæinn. Ekki fannst forráðamönnum bæjarins þó þörf á að setja upp betri götumerkingar í bænum þetta sumarið, enda hef ég séð villuráfandi gesti leita að húsum vina sinna sem átti að heimsækja og þeir vissu ekki einu sinni í hvaða götu þeir voru að leita. En tökum Pollíönnu á þetta, það kemur sumar eftir þetta sumar.

Það líður á sumarið og eftir þetta sólríka sumar hefur allt græmneti og ber á trjám og lyngi sprottið sem aldrei fyrr. Fátt er gómsætara en ný uppteknar kartöflur, vel saltaðar með smjörklípu og gulræturnar eru þegar orðnar stórar og sætar á bragðið. Svo er bara að drífa sig í berjamó, því nóg er af berjunum þetta sumarið.  

Hafið það gott og njótið daganna.

Kveðja, Nöldri.

Höf. Nöldri

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga