Tilkynningar | 01. desember 2016 - kl. 09:48
Jólamarkaður í Húnaveri 4. des.
Frá Kvenfélagi Bólstaðarhlíðarhrepps

Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps stendur fyrir Jólamarkaði í Húnaveri sunnudaginn 4. desember klukkan 13:30-18. Enn er hægt að panta söluborð hjá Guðrúnu í síma 452 7149 eða á netfangið gh72@emax.is. Söluborðið kostar 2000 kr. Kvenfélagið verður með kaffisölu á staðnum. Einnig verðum við með tombólu og mun ágóði hennar renna í Jólasjóð A-Hún.

Athugið, erum ekki með posa.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps

Þið finnið okkur á Facebook https://www.facebook.com/groups/796656737103366

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga