Veggurinn í kringum kirkjugarðinn á Blönduósi.
Veggurinn í kringum kirkjugarðinn á Blönduósi.
Fréttir | 30. maí 2019 - kl. 08:16
Björgum kirkjugarðsveggnum

Stjórn Kirkjugarðs Blönduóss vinnur hörðum höndum við að bjarga kirkjugarðsveggnum frá eyðileggingu en í honum er listaverk mótað í steypuna eftir myndlistamanninn Snorra Svein Friðriksson frá Sauðárkróki. Verkefnið er dýrt og þess vegna leitar stjórnin eftir stuðningi frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum undir kjörorðinu góða, „margt smátt gerir eitt stórt.“

Styrkja má þetta verðuga verkefni með því að leggja inn á reikning kirkjugarðsins númer 0307-13-600603 og er kennitalan 460300-3980. Stjórnin þakkar öllum þeim sem nú þegar hafa stutt verkefnið fyrir stuðninginn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga