Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Mánudagur, 20. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:42 0 0°C
Laxárdalsh. 18:42 0 0°C
Vatnsskarð 18:42 0 0°C
Þverárfjall 18:42 0 0°C
Kjalarnes 18:42 0 0°C
Hafnarfjall 18:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 70 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
11:10 04. maí 2024   Opinn fundur um Prjónagleðina
Opinn fundur um Prjónagleðina, sem fram fer helgina 7.-9. júní í sumar, verður haldinn í Ỏsbæ mánudaginn 6. maí klukkan 17. Í auglýsingu um fundinn segir að Húnabyggð taki að þessu sinni beinan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og leggi metnað sinn í að viðburðurinn verði líflegur og áhugaverður fyrir gesti og heimafólk.
10:58 04. maí 2024   Kjósa á um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar í júní
Samstarfsnefnd um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Nefndin kom saman á þremur bókuðum fundum, en nefndarmenn höfðu áður skipað verkefnahóp sem falið var að skoða möguleika á sameiningu sveitarfélaganna. Það er álit nefndarinnar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa um sameininguna. Jafnframt leggur nefndin til að henni verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
10:48 04. maí 2024   Auglýst eftir viðburðum á 17. júní og Húnavöku
Á vef Húnabyggðar er biðlað til íbúa, fyrirtækjaeigendur og forsvarsmenn félagasamtaka um að viðra hugmyndir um viðburði sem hægt væri að halda á þjóðhátíðardaginn 17. júní næstkomandi og á bæjarhátíðinni Húnavöku, sem haldin verður 18.-21. júlí. „Ef þið eruð með hugmyndir að viðburði eða viljið halda viðburð á Húnavöku eða 17.júní hátíðarhöldunum í sumar, hvetjum við ykkur til að hafa samband,“ segir á vef sveitarfélagsins.
10:38 04. maí 2024   Skuld vegna orgelsins greidd að fullu
Skuld Blönduóskirkju vegna orgelsins í kirkjunni er að fullu greidd. Með samstillti átaki síðustu fjögur ár hefur tekist að gera upp skuldina með fjárframlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, að því er segir á facebooksíðu hennar. Lokahnykkurinn á söfnun fyrir orgelinu voru vortónleikar í kirkjunni 28. apríl síðastliðinn. Fram komu kór kirkjunnar ásamt Eyþóri organista. Tekið var á móti frjálsum framlögum sem runnu til orgelsjóðs kirkjunnar, en fyrir tónleikana var skuldin 400 þúsund krónur.
13:54 03. maí 2024   Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Hægt verður að kjósa víðar en á sýsluskrifstofum innan um­dæmis­ins og verða kjörstaðir nánar auglýstir síðar á vefsíðunni www.kosning.is og í héraðsfréttablöðum.
22:27 02. maí 2024   Nýr samningur um Vatnsdalsá
Veiðifélag Vatnsdalsár hélt aðalfund sinn í síðasta mánuði. Þar samþykkti fundurinn einróma nýjan samning við G og P ehf. og er um tímamótasamning að ræða samkvæmt fréttamanni Sporðakasta Morgunblaðsins. Samningurinn er til tíu ára og leigan fyrir laxahluta árinnar hækkar ekki milli ára.
11:28 02. maí 2024   Undirbúningur að uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í fullum gangi
Vonir standa til að á þessu ári hefjist framkvæmdir við uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í Húnaþingi vestra til framleiðslu á skógarplöntum. Einkahlutafélagið Skógarplöntur og verkefnastjóri frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Magnús Barðdal, vinna að verkefninu. Í tengslum við það fór hópurinn í ferð til Svíþjóðar og Hollands á dögunum til að kynna sér aðrar sambærilegar gróðurstöðvar og skoða búnað frá framleiðendum.
16:41 30. apr. 2024   Samningur um samvinnurými á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning vegna styrks, að fjárhæð 15 milljónir, til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Markmið verkefnisins er að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið sem um ræðir var áður fiskvinnsluhús, síðast rækjuvinnsla.
15:13 30. apr. 2024   Birna Ágústsdóttir sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefnið er beiðni Ỏlafs Kristófers Ỏlafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024.
08:19 30. apr. 2024   Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar. Um er að ræða stöðu löglærðs fulltrúa á Sauðárkróki, innheimtufulltrúi á Ísafirði, tvær stöður innheimtufulltrúa á Blönduósi og starf verkefnastjóra milliríkjainnheimtu á Blönduósi.
15:13 29. apr. 2024   Jóhann Örn ráðinn tengslafulltrúi á fjölskyldusviði Húnaþings vestra
Jóhann Örn Finnsson hefur verið ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa á fjölskyldusviði Húnaþings vestra sem auglýst var á dögunum. Tengslafulltrúi mun starfa með ungmennum í sveitarfélaginu í samræmi við áherslur farsældarlaga og er tengiliður þeirra við stjórnkerfi og stofnanir. Hann mun leitast við að aðstoða ungmenni við að finna ástríðu sína og vinna að henni með fjölbreyttu tómstundastarfi og stuðningi, eins og segir á vef Húnaþings vestra.
15:07 29. apr. 2024   Íbúafundur í Skagabyggð á sunnudaginn
Skagabyggð heldur íbúafund í Skagabúð sunnudaginn 5. maí næstkomandi klukkan 14. Á dagskrá fundarins eru sameiningarmál og önnur mál. Farið verður yfir stöðu sameiningarviðræðna við Húnabyggð og annað það sem liggur á íbúum að ræða.
11:45 29. apr. 2024   Auglýst eftir fólki í hópslysaæfingu
Lögreglan á Norðurlandi vestra auglýsir eftir fólki til að taka þátt í hópslysaæfingu og leika fórnarlamb eða jafnvel óttasleginn ættingja, eins og segir á facebooksíðu hennar. Þar kemur fram að nýverið hafi verið haldin kynning fyrir unglinga í Húnaskóla um hlutverk og mögulega aðkomu að æfingunni. Æfingin verður haldin 11. maí næstkomandi og hægt er að senda tölvupóst á netfangið nordurland.vestra@logreglan.is og tilkynna þátttöku.
09:13 29. apr. 2024   Hátíðarhöld 1. maí í Húnabyggð
Verkalýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Húnabyggð 1. maí, sem er miðvikudagur að þessu sinni, undir yfirskriftinni Sterk hreyfing - sterkt samfélag. Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst dagskráin klukkan 15. Boðið verður upp á fábæra tónlist og söng. Ræðumaður dagsins er Sigurey A. Ỏlafsdóttir, formaður Stéttarfélags Samstöðu. Afþreying fyrir börnin. Kvenfélag Svínavatnshrepps sér um glæsilegar veitingar.
21:53 28. apr. 2024   Halla Hrund forsetaframbjóðandi á ferð um Norðurland í vikunni
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að framundan eru forsetakosningar. Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands. Tveir fundir verða í Húnavatnssýslum, í Víðigerði og á Blönduósi.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið