Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Mánudagur, 20. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:55 0 0°C
Laxárdalsh. 16:55 0 0°C
Vatnsskarð 16:55 0 0°C
Þverárfjall 16:55 0 0°C
Kjalarnes 16:55 0 0°C
Hafnarfjall 16:55 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
17. maí 2024
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 16-30 31-45 af 57 Næstu 46-57
KlukkanDagsetningFrétt
09:43 15. apr. 2024   Kormákur Hvöt úr leik í Mjólkurbikarnum
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
10:27 13. apr. 2024   Ársþing SSNV á Blönduósi heppnaðist vel
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
10:16 13. apr. 2024   Hvammstangavöllur verður Sjávarborgarvöllur
Stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar og veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga hafa skrifað undir samning um að Hvammstangavöllur í Kirkjuhvammi beri nafn Sjávarborgar í sumar. Þetta er fyrsta sinn sem knattspyrnuvöllurinn ber nafn styrktaraðila, að því er segir á Aðdáendasíðu knattspyrnuliðsins Kormáks-Hvatar á Facebook. Í sumar fara fjórir meistaraflokksleikir fram á Sjávarborgarvellinum, auk leikja í yngri flokkum.
13:25 12. apr. 2024   Starf og rekstur björgunarfélagsins gengur vel
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu var haldinn í vikunni og að því er fram kemur á facebooksíðu félagsins var mæting félaga mjög góð, bæði hjá gömlum og nýjum. Þar segir að starf félagsins gangi mjög vel sem og rekstur þess. Húsnæði félagsins hafi tekið til sín mikinn tíma félaga en nú sé markmiðið að efla starfið enn frekar. Ný stjórn var kosin á fundinum og var þeim sem stigu til hliðar færðar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
15:20 11. apr. 2024   Engin sameining 1. júní næstkomandi
Ekki liggur fyrir hvenær boðað verður til íbúakosninga um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar en til stóð að hún færi fram í þessum mánuði og að sameining tæki gildi 1. júní næstkomandi, yrði hún samþykkt. Samstarfsnefnd um sameininguna, sem skipuð er átta fulltrúum, fjórum frá hvoru sveitarfélagi, hefur það verkefni að skipuleggja sameiningarvinnuna, m.a. að setja upp verk- og tímaáætlun og leggja fram sameiningartillögu.
14:48 11. apr. 2024   Grunnskólar fá gjafir frá velunnurum
Kvenfélagið Freyja færði nýverið Grunnskóla Húnaþings vestra hjartastuðtæki að gjöf. „Gjöfin mun vonandi aldrei koma að notum en við erum þó svo þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem er mikilvæg viðbót í öryggisbúnað skólans,“ segir á vef hans. Höfðaskóli á Skagaströnd fékk líka gjöf nýverið, frá foreldrafélagi skólans, en það voru tvær tifsagir, „sem munu koma sér vel líkt og styrkurinn til bókakaupa gerði í haust,“ segir á vef skólans.
13:57 11. apr. 2024   Lárus Ægir skákmeistari Skagastrandar 2024
Skákmót Skagastrandar 2024 fór fram í síðasta mánuði en ekki hefur verið keppt um titilinn skákmeistari Skagastrandar í meira en áratug. Átta skákmenn tóku þátt í mótinu sem lauk þannig að Martin Krempa sigraði með sex vinninga. Hann keppti sem gestur á mótinu og því varð Lárus Ægir Guðmundsson krýndur skákmeistari Skagastrandar með fimm vinninga. Einkahlutafélagið H-59 stóð að mótinu og var það opið öllum.
13:44 11. apr. 2024   Húnaþing vestra gerir gjaldskrárbreytingar
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt gjaldskrárbreytingar vegna stöðuleikasamninganna sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu fyrir skömmu en þær miða að mestu við gjaldskrár er varða barnafjölskyldur. Þannig verður hækkunin 2,5% frá árinu 2023 í stað 5,5%, eins og áður hafi verið ákveðið, og taka breytingarnar almennt gildi 1. júní næstkomandi, með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í tekt við stöðugleikasamninganna.
15:52 09. apr. 2024   Tónleikar á Hvammstanga á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa
Tónleikar á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa verða haldnir laugardaginn 13. apríl í Hvammstangakirkju og hefjast klukkan 15. Boðið er upp á söng, hljóðfæraleik og ljóðaflutningur, sem m.a. nemendur tónlistaskóla Húnavatnssýslna taka þátt í. Einnig ætlar Karlakórinn Lóuþrælar að syngja. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn.
15:43 09. apr. 2024   Húnaþing vestra - lifandi samfélag
Húnaþing vestra - lifandi samfélag fékk flest atkvæði í könnun á tillögum að slagorði fyrir sveitarfélagið og hefur byggðarráð samþykkt það fyrir sitt leyti. Í síðasta mánuði gátu íbúar valið á milli fimm tillagna að slagorði, sem öll áttu að lýsa kjarna samfélagsins og hægt væri að nota í kynningarskyni. Tillögurnar komu úr íbúakönnun sem framkvæmd var síðastliðið haust. Einnig var hægt að koma með nýjar tillögur.
11:08 08. apr. 2024   FNV með sigur í Söngkeppni framhaldsskólanna
Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna 2024 á laugardaginn en hún keppti fyrir hönd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Keppnin var haldin í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi og tóku fulltrúar 25 framhaldsskóla þátt. Emelíana söng nýja íslenska útgáfu af laginu Never Enough úr kvikmyndinni The Greatest Showman. Emelíana er frá Sauðárkróki.
21:48 07. apr. 2024   Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu miðvikudaginn 10. apríl
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu verður haldinn miðvikudaginn 10. apríl kl 20:00 í húsnæði félagsins að Miðholti 1.
17:28 07. apr. 2024   Kormákur Hvöt sigraði S.R. í Mjólkurbikarnum
Kormákur Hvöt mætti í Laugardalinn í Reykjavík í gær þegar liðið spilað gegn Skautafélagi Reykjavíkur í 64-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar. Gestgjafarnir leika í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla en Kormákur Hvöt í 2. deild eins og alþjóð veit. Eins og við mátti búast var Kormákur Hvöt sterkari aðilinn í leiknum og urðu lokatölur 2-4 fyrir gestina.
18:46 06. apr. 2024   Íslenskur tangó í tali og tónum í Blönduóskirkju
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir söngkona og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmonikkuleikari gera íslenskum tangó skil í tali og tónum á tónleikum í Blönduóskirkju föstudaginn 19. apríl klukkan 18. Fyrstu tónleikar þeirra með sömu efnisskrá fóru fram í Hörpu síðastliðið haust og þóttu stórskemmtilegir. Ásta Soffía á ættir að rekja í Víðidalinn en amma hennar hét Soffía Jónsdóttir og var frá Nípukoti.
18:04 05. apr. 2024   Samningur um byggingu nýs verknámshúss við FNV undirritaður
Í dag var undirritaður samningur um byggingu nýs verknámshúss við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Undirritunin fór fram í verknámshúsi Fjölbrautaskólans að viðstöddu margmenni þ.á.m. nemendum, starfsfólki skólans og fulltrúum úr atvinnulífinu. Samningurinn gerir ráð fyrir stækkun verknámshúss um allt að 1.400 fermetra.
Fyrri 16-30 1 2 3 4 Næstu 46-57
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið