 Stekkjarvík úr lofti. Ljósm: www.mbl.is
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 09:18
Þessa dagana vinna verktakar hörðum höndum við að grafa gríðarmikla holu í Stekkjarvík norðan Blönduóss. Hér er um að ræða framtíðar sorpurðunarstað Austur-Húnavatnssýslu, Skagafjarðar og Akureyrar.
|
|
Fréttir | 07. september 2010 - kl. 20:46
Á síðasta fundi skipulags-, byggingar- og veitunefndar Blönduósbæjar var farið yfir tillögur að svörum við athugsemdum sem bárust vegna aðalskipulags Blönduósbæjar 210-2030. Alls bárust 180 athugasemdir og áttu þær allar við Húnavallaleið. Nefndin féllst ekki á þær athugasemdir að gert verði ráð fyrir Húnavallaleið í aðalskipulaginu.
|
|
Fréttir | 07. september 2010 - kl. 20:42
Á síðasta fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps kom fram að alls bárust 196 athugasemdir við aðalskipulag 2010-2022. Fram kom að 13 stofnunum og 5 sveitarfélögum var send skipulagstillagan til umsagnar. Athugasemdir um að Húnavallaleið sé ekki á aðalskipulaginu voru samtals 190, þar af voru 164 algjörlega samhljóða, en í 26 athugasemdum komu fram mismunandi áherslur varðandi Húnavallaleið.
|
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 17:29
Atvinnuþróun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), í samstarfi við Vaxtarsamning Norðurlands vestra, ásamt starfsfólki Hveravallafélagsins, framkvæmdi sumarið 2009 spurningakönnun meðal ferðafólks á Hveravöllum um þjónustuna sem þar er veitt og viðhorf til þess hvaða þjónusta ætti að vera til staðar.
|
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 17:21
Frá Sigurði Sigurðarsyni á Skagaströnd
Sameiginlegt mót Golfklúbbs Skagastrandar og Golfklúbbsins Óss á Blönduósi var haldið síðasta laugardag og var tilefnið 25 ára afmæli beggja klúbbanna á þessu ári. Alls tóku 36 golfarar þátt. Mótið var fyrst og fremst til skemmtunar og því var spilaformið svokallað Texas Scramble með forgjöf. Var keppendum raðað upp eftir forgjöf, skipt í miðju og svo dregið saman, einn úr hvorum helmingi.
|
 Sigurvegarar í A fl. frá vinstri: Hilmar og Dot, Þorvaldur og Lísa og Valgeir og Skotta
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 12:28
Hin árlega landskeppni Smalahundafélags Íslands var haldin við frábærar aðstæður á Vorboðavelli við Blönduós helgina 28. - 29. ágúst s.l. Vel var mætt og var 21 hundur skráður til leiks en keppt er í 3 flokkum. Það var smalahundadeildin Snati í Húnavatnssýslu sem sá um framkvæmdina sem var til mikillar fyrirmyndar.
|
Tilkynningar | 05. september 2010 - kl. 19:46
Tilkynning frá hressum konum
Líkt og í fyrra verður fótbolti í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fyrir konur á öllum aldri sem kallast Old girls. Spilað verður á miðvikudagskvöldum kl. 19:00 – 20:00. Allar konur velkomnar í smá hlaup og skemmtilegheit. Nánari upplýsingar gefur Kristjana í sím 452-4118 eða 849-4649.
|
Tilkynningar | 05. september 2010 - kl. 19:42
Tilkynning frá Menningarráði Norðurlands vestra
Vegna auglýsingar um verkefnastyrki verður Menningarfulltrúi Norðurlands vestra með sérstaka viðtalstíma. Tvær úthlutanir voru ákveðnar fyrir árið 2010 og hefur sú fyrri farið fram. Síðari úthlutunin verður nú á næstunni en lokafrestur er til 15. september n.k.
|
Tilkynningar | 05. september 2010 - kl. 19:28
Tilkynning frá Vilko ehf.
Vilko á Blönduósi hefur nú hafið framleiðslu á nýju kryddi sem hannað er sérstaklega fyrir popp. Poppsaltið ber keim af osta- og smjörbragði og bragðið þykir minna á gamla góða bíópoppið. Poppsaltið er kjörið á popp sem poppað er á gamla mátann og einnig til að bragðbæta örbylgjupopp. Poppsaltið er án MSG.
|
 Mirnes í baráttunni í gær
Fréttir | 05. september 2010 - kl. 19:18
Það verður ekki annað sagt um leik Hvatar og KS/Leifturs en að annað liðið sótti til sigurs en hitt til að landa einu stigi. Leikmenn Hvatar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér mun fleiri opin færi í leiknum en inn vildi boltinn ekki og því sættust liðin á skiptan hlut. Hvöt er því áfram í 5. sætinu og KS/Leiftur í því sjöunda.
|
Fréttir | 03. september 2010 - kl. 17:34
18. ársþing SSNV var haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi, í boði Blönduósbæjar, dagana 27. -28. ágúst síðastliðinn. Þingið sóttu um 50 sveitarstjórnarmenn af Norðurlandi vestra og gestir. Ávörp fluttu Kristján L . Möller ráðherra samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðaráðherra og Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
|
Fréttir | 03. september 2010 - kl. 12:30
Hvöt – KS/Leiftur laugardaginn 4. sep. Kl. 14:00 á Blönduósvelli. Gengi Hvatarliðsins hefur verið ágætt í sumar í 2. deildinni í knattspyrnu og er farið að sjá fyrir endann á góðu tímabili. Á morgun verður liðið í baráttu við KS/Leiftur á heimavelli.
|
Fréttir | 03. september 2010 - kl. 09:12
Þá er Nöldri kominn aftur í gang eftir sumarfrí. Ekki er nú hægt að segja að hann standi undir nafni í þetta sinn, því hann er óvenjulega jákvæður út í allt og alla. Í septembernöldri sínu þakkar Nöldri fyrir margt af því sem sumarið hefur gefið okkur.
|
Fréttir | 03. september 2010 - kl. 08:47
Nú er sumarið að renna sitt skeið á enda og því kominn tími á hitting í Perlunni líkt og undanfarin ár. Þar hittast hressar og kátar konur sem einhverjar taugar hafa átt til Blönduóss og nágrennis í gegnum tíðina.
|