Fréttir | 09. september 2010 - kl. 07:45
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra hinn 6. september síðastliðinn var til umfjöllunar fréttatilkynning Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Þar kemur m.a. í ljós að fjárhagsstaða Húnaþings vestra er afar traust en heildarskuldir og skuldbindingar í hlutfalli af heildartekjum A-hluta árið 2009 er 50% og er ekkert sveitarfélag með fleiri en 1.000 íbúa með lægri skuldir og skuldbindingar.
|
|
 Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi
Fréttir | 09. september 2010 - kl. 07:29
Fjórir heilbrigðisráðherrar hafa á síðastliðnum þremur árum fjallað um sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi, án þess að komast að niðurstöðu. Tíðar mannabreytingar í ráðuneytinu auka á óvissu um framtíð þessara stofnana, segir Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduóss í viðtali við Ríkisútvarpið á dögunum. Í þar síðustu viku ætlaði ráðherra að kynna fyrir sveitarstjórnarmönnum hugmyndir sínar um framtíð stofnananna, en fundinum var frestað þangað til í þessari viku.
|
|
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 20:56
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í byrjun vikunnar greindi sveitarstjóri frá viðræðum sem fram hafa farið við fulltrúa Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins um boðað bann á dragnótaveiðum í Hrútafirði, Húnafirði og Miðfirði. Sveitarstjóri upplýsti að ráðuneytið hafi um síðastliðin mánaðarmót gefið út reglugerð þar sem horfið hefur verið frá áðurboðuðu banni og undanþága veitt til næstu áramóta til dragnótaveiða í Hrútafirði og Miðfirði með ákveðnum takmörkunum.
|
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 20:21
Í gær var lagt fyrir skipulags-, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar, deiliskipulag Sölvabakka. Tillagan var auglýst samkvæmt 25. gr. skipulags og byggingarlaga og bárust engar athugasemdir við tillöguna. Umsögn barst frá Fornleifavernd ríkisins sem gerði engar athugasemdir við tillöguna.
|
 Mynd: Nordanatt.is
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 20:19
Í gær afhentu Húsfreyjur á Vatnsnesi fjallskilastjórn Vatnsnesi 45 endurskinsvesti sem munu koma sér vel í göngum sem framundan eru, en smalað verður á Vatnsnesi 11. september næstkomandi. Frá þessu er sagt á vefnum Norðanátt.is.
|
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 15:28
Stóðsmölun og réttir í Austur-Húnavatnssýslu
Dagana 18. og 19. september verður mikið fjör í Austur-Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt og er þetta í tuttugasta skipti sem gestum er boðið að taka þátt í ævintýrinu. Verður ýmislegt til gamans gert í tilefni af þeim tímamótum. Gestir eiga þess kost að slást í för með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri.
|
Pistlar | 08. september 2010 - kl. 12:05
Eftir Einar K. Guðfinnsson, alþingismann
Meginniðurstaða Endurskoðunarnefndarinnar kemur fram í eftirfarandi orðum í niðurstöðukafla skýrslunnar: Meirihluti starfshópsins telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins sé skýr.
|
 Stekkjarvík úr lofti. Ljósm: www.mbl.is
Fréttir | 08. september 2010 - kl. 09:18
Þessa dagana vinna verktakar hörðum höndum við að grafa gríðarmikla holu í Stekkjarvík norðan Blönduóss. Hér er um að ræða framtíðar sorpurðunarstað Austur-Húnavatnssýslu, Skagafjarðar og Akureyrar.
|
Fréttir | 07. september 2010 - kl. 20:46
Á síðasta fundi skipulags-, byggingar- og veitunefndar Blönduósbæjar var farið yfir tillögur að svörum við athugsemdum sem bárust vegna aðalskipulags Blönduósbæjar 210-2030. Alls bárust 180 athugasemdir og áttu þær allar við Húnavallaleið. Nefndin féllst ekki á þær athugasemdir að gert verði ráð fyrir Húnavallaleið í aðalskipulaginu.
|
Fréttir | 07. september 2010 - kl. 20:42
Á síðasta fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps kom fram að alls bárust 196 athugasemdir við aðalskipulag 2010-2022. Fram kom að 13 stofnunum og 5 sveitarfélögum var send skipulagstillagan til umsagnar. Athugasemdir um að Húnavallaleið sé ekki á aðalskipulaginu voru samtals 190, þar af voru 164 algjörlega samhljóða, en í 26 athugasemdum komu fram mismunandi áherslur varðandi Húnavallaleið.
|
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 17:29
Atvinnuþróun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), í samstarfi við Vaxtarsamning Norðurlands vestra, ásamt starfsfólki Hveravallafélagsins, framkvæmdi sumarið 2009 spurningakönnun meðal ferðafólks á Hveravöllum um þjónustuna sem þar er veitt og viðhorf til þess hvaða þjónusta ætti að vera til staðar.
|
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 17:21
Frá Sigurði Sigurðarsyni á Skagaströnd
Sameiginlegt mót Golfklúbbs Skagastrandar og Golfklúbbsins Óss á Blönduósi var haldið síðasta laugardag og var tilefnið 25 ára afmæli beggja klúbbanna á þessu ári. Alls tóku 36 golfarar þátt. Mótið var fyrst og fremst til skemmtunar og því var spilaformið svokallað Texas Scramble með forgjöf. Var keppendum raðað upp eftir forgjöf, skipt í miðju og svo dregið saman, einn úr hvorum helmingi.
|
 Sigurvegarar í A fl. frá vinstri: Hilmar og Dot, Þorvaldur og Lísa og Valgeir og Skotta
Fréttir | 06. september 2010 - kl. 12:28
Hin árlega landskeppni Smalahundafélags Íslands var haldin við frábærar aðstæður á Vorboðavelli við Blönduós helgina 28. - 29. ágúst s.l. Vel var mætt og var 21 hundur skráður til leiks en keppt er í 3 flokkum. Það var smalahundadeildin Snati í Húnavatnssýslu sem sá um framkvæmdina sem var til mikillar fyrirmyndar.
|
Tilkynningar | 05. september 2010 - kl. 19:46
Tilkynning frá hressum konum
Líkt og í fyrra verður fótbolti í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fyrir konur á öllum aldri sem kallast Old girls. Spilað verður á miðvikudagskvöldum kl. 19:00 – 20:00. Allar konur velkomnar í smá hlaup og skemmtilegheit. Nánari upplýsingar gefur Kristjana í sím 452-4118 eða 849-4649.
|