Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:48 0 0°C
Laxárdalsh. 08:48 0 0°C
Vatnsskarð 08:48 0 0°C
Þverárfjall 08:48 0 0°C
Kjalarnes 08:48 0 0°C
Hafnarfjall 08:48 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 25. maí 2016 - kl. 15:34
Aðgerðir í þágu heimilanna
Eftir Elsu Láru Arnardóttur

Í morgun fór fram opinn fundur um húsnæðismál. Þar voru húsnæðisfrumvörp félags – og húsnæðismálaráðherra til umræðu. Á fundinum fór undirrituð yfir þær breytingar sem nefndarmenn velferðarnefndar hefur gert á frumvörpunum og almennt yfir stöðu málanna í nefndinni.

Fundurinn var afar vel sóttur og hægt er að segja að sú góða mæting hafi svo sannarlega verið hvatning til að halda áfram að vinna vel að húsnæðismálunum. Það er að klára, núna fyrir þinghlé, 3. umræðu almennra félagsíbúða, frumvarp um auknar húsnæðisbætur og breytingar á húsaleigulögum. En öll þessi vinna er í fullum gangi innan velferðarnefndar. Unnið er að því að auka húsnæðisöryggi allra landsmanna. Það að einstaklingar og fjölskyldur hafi raunhæft val um búsetuform. Hvort þeir kjósi að búa á leigumarkaði, í eigin húsnæði eða í húsnæðissamvinnufélagi. Þessi verk, sem önnur sýna að heimilin hafa svo sannarlega ekki gleymst í verkefnum ríkisstjórnar Framsóknar – og Sjálfstæðisflokksins.

Á næstu dögum mun félags – og húsnæðismálaráðherra kynna fimmta frumvarpið um húsnæðismál og snýst það m.a. um breytingar á fjármálamarkaði.

Þessu tengt þá langar mig að minnast á að undanfarna daga hafa fjölmiðlar verið að spyrja þingmenn spurninga um hvort við styðjum að kosningar verði í haust.

Ég hef svarað því þannig að persónulega finnist mér ekki tímabært að ákveða kjördag. Mikilvægt væri að horfa til þeirra verkefna sem ríkisstjórnin var kosin til að vinna að. Má þar m.a. nefna húsnæðismálin sem ég fjallaði um hér að framan. Jafnframt þarf að klára aðgerðir er varða verðtrygginguna og endurbætur á almannatryggingakerfinu. Auk þessa þarf að fara í endurbætur á löggjöf um fæðingarorlof, það er að hækka greiðslur og lengja fæðingarorlofið. Þetta eru þau brýnu verkefni sem horfa þarf til og klára.

Þegar þeim er lokið er tímabært að ganga til kosninga. Hvort sem það er í haust eða síðar.

Þessi grein er byggð upp á ræðu minni í Stöfum þingsins, þann 25. maí 2016.

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið