Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Blönduósbær mun dreifa tunnum fyrir pappír til heimila á Blönduósi á næstu dögum, að því er fram kemur vef sveitarfélagsins. Tunnunum er ætlað að taka við öllum pappír til endurvinnslu og er dreift með bæklingi með upplýsingum hvað megi fara í tunnuna og hvað á að fara með á endurvinnslustöðina.
Íbúar eru hvattir til að huga að því að koma tunnunum haganlega fyrir og festa þannig að þær fjúki ekki í næsta roki. Tunnurnar eiga að vera staðsettar fyrir framan húsin og aðgengi að þeim á að vera gott og hindrunarlaust. Tunnurnar verða losaðar á þriggja vikna fresti og er hægt að sjá upplýsingar um losunardaga á vef Blönduósbæjar, www.blonduos.is.
Varðandi endurvinnslutunnu fyrir marga flokka sem eru í notkun í dag þá eru þær á vegum Sorphreinsunar VH ehf. en Blönduósbær mun hætta að niðurgreiða þær á móti íbúum frá 1. ágúst næstkomandi. Á vef Blönduósbæjar segir að hægt sé að semja við Sorphreinsun VH ehf. um að vera áfram með þá tunnu og er aðilum bent á að hafa samband við Vilhelm í síma 893 3858 eða með tölvupósti vilhelm@gamar.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |