Ærslabelgurinn. Ljósmynd: Skagastrond.is
Ærslabelgurinn. Ljósmynd: Skagastrond.is
Fréttir | 20. júlí 2016 - kl. 15:00
Ærslabelgur á Skagaströnd

Á Skagaströnd hefur verið settur niður svokallaður „Ærslabelgur“ sem er uppblásið leiktæki um 100 fermetrar að flatarmáli. Ærslabelgurinn var settur niður á Hólanesi rétt við gamla húsið Árnes og í nágrenni við Kaffi Bjarmanes og veitingahúsið Borgina. Það er Sveitarfélagið Skagaströnd sem lét setja belginn upp og annast rekstur hans. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Þar kemur fram að Ærslabelgurinn verður blásin upp klukkan 10 á morgnanna og loft tekið af honum klukkan 22 á kvöldin. Belgurinn verður blásinn upp fram á haust en verður svo hafður í dvala þar til vorar á ný. Hann er öllum opinn og ekki farið fram á annað en að „hopparar“ séu ekki í skóm og gangi snyrtilega um svæðið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga