Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:18 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Skotveiðifélag Íslands ætlar að kæra Sjálfseignarstofnun Grímstungu- og Haukagilsheiðar sem leigir út Lambatungur til rjúpnaveiða. Landsvæðið er á milli Grímstungu- og Haukagilsheiðar og er skilgreint sem þjóðlenda. Dúi Landmark, formaður SKOTVÍS, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að veiðileyfasala í þjóðlendum verði ekki liðin.
„Sjálfseignarstofnunin Grímstungu- og Haukagilsheiði hefur tekið sér það alræðisvald að leigja út þessa þjóðlendu til þriðja aðila, fyrirtækis sem er í veiðileyfasölu,“ sagði Dúi. Í ljósi nýlegs úrskurðar forsætisráðuneytisins, þar sem Húnaþingi vestra var bannað að rukka fyrir rjúpnaveiði í þjóðlendu, geti SKOTVÍS ekki látið þetta óátalið.
Því undirbúi lögmaður nú kæru af hálfu SKOTVÍS á hendur þessari sjálfseignarstofnun. „Krafan felst í því að fallið verði frá sölu, að þeir afsali sér þessum rétti sem þeir telja sig eiga til útleigu á gæðum og fuglaveiði í þjóðlendu.“
Dúi sagði Grímstungu- og Haukagilsheiði eignarland og SKOTVÍS geri engar athugasemdir við veiðileyfasölu þar. „Það er náttúrulega alveg tvímælalaust að þar ráða menn hvort þeir selja inn á landið eða ekki. En Lambatungur eru þjóðlenda og þjóðlendur eru eitthvað sem Íslendingar eiga og eiga saman.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |