Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:58 0 0°C
Laxárdalsh. 04:58 0 0°C
Vatnsskarð 04:58 0 0°C
Þverárfjall 04:58 0 0°C
Kjalarnes 04:58 0 0°C
Hafnarfjall 04:58 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Frá minningarhátíðinni um Jónas. Ljósmynd: Jón Sig.
Frá minningarhátíðinni um Jónas. Ljósmynd: Jón Sig.
Pistlar | 26. nóvember 2016 - kl. 20:32
Stökuspjall: Ljóð sem vert er á að byggja
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Fjölmenni sótti minningarhátíð um Jónas Tryggvason í Blönduóskirkju þann 12. nóv. og þar voru frumflutt tvö lög við ljóð Jónasar. Annað lagið var eftir Benedikt Blöndal og flutt af karlakórnum en hitt var flutt af djasshljómsveit undir stjórn hins tónsmiðsins, Sigurdísar Söndru Tryggvadóttur. Fjölbreytileg tónlist var flutt á samkomunni sem bar starfi Tónlistarskólans gott vitni. Til samkomunnar komu 5 Fljótstungumenn, tengdamenn Jónasar heitins og notuðu þau strætó 57 til ferðarinnar sem hófst kl. 9 í Mjóddinni. Með sama vagni komust þau um kvöldið aftur heim til borgarinnar. Glúmur Gylfason komst ekki til samkomunnar en sendi stöku, sem ritarinn flutti:

Að kvæðum ræður Heiðmar hyggja
nú Húnvetningum býður þiggja
þau eftir Jónas liðinn liggja
ljóð sem vert er á að byggja. GlG

Þriðja lagið við ljóð Jónasar samdi Eiríkur söngstjóri Grímsson í Reykjavík. Húnakórinn flutti það í messukaffi í Þingborg 14. febrúar en um það leyti var 100. afmælisdagur Jónasar.

Benedikt samdi lag sitt við ljóðið Til þeirra sem héldu að ég væri skáld þar sem höfundurinn rabbar við heiminn meðan hann leikur á hörpu sína:

Ég kaus mér hörpu með háum streng,
en hafði hennar lítil not. 
Hún flutti aðeins einróma tóna
og undarleg stefjabrot.
 
Þá skipti ég um og lágstemmd lög
ég lék nú á streng minn, einn. 
Þeim hæfði víst ekki að heyrast víða, 
enda heyrði þau sjaldnast neinn.
 
Svo gafst ég upp, því engum er fært
að ætla sér þyngra en hann ber. 
Ég kastaði hörpunni af hendi í dýpsta
hylinn við fætur mér. JT

Jónas kaus sér hörpu og hann fann leið sem varðaði leið að betra samfélagi. Það var honum meira virði en innstæða á banka.  

Jón í Ártúnum var rúmlega ári yngri en Jónas og samstíga bróður sínum í tónlistar- og félagsmálum. Jón kvaddi kæran kórfélaga og vin þeirra beggja með ljóðmælum þegar prestaskipti urðu og Birgir Snæbjörnsson flutti frá Æsustöðum norður að Laufási:

Geymi þig góðar vættir
gefi þér konu, syni,
dætur og virktavini.
Vaxi þér stórar ættir.
Seinna þá ertu sestur
sjálfur að helgum steinum:
Geti af þínum greinum
gefist prestur hér vestur. JónT

Tengt efni á vefnum:
Minningarhátíð um Jónas Tryggvason: http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=13319 
Ljóð JT: http://stikill.123.is/blog/2011/11/11/550654/ 
Skilnaðarljóð Jóns í Ártúnum: http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=4838   
Vísur Glúms: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?ID=18045   
Þeir urðu vinir á vondu ferðalagi: http://www.huni.is/index.php?cid=12589  
Rökkrið sveipaði rauðum tjöldum . . .  http://www.huni.is/index.php?cid=12568    
Efnisyfirlit á Stikilsvefnum: http://stikill.123.is/home/

Ingi Heiðmar Jónsson
 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið