Fréttir | 21. febrúar 2017 - kl. 11:22
Kynningarfundir um Arctic Coastline Route

Þriðjudaginn 28. febrúar er boðið til kynningarfunda á Skagaströnd og Hvammstanga um ferðamannaveginn "Arctic Coastline Route". Ferðamannavegurinn liggur að mestu meðfram strandlengju Norðurlands og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands. Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu og annað áhugafólk er hvatt til að mæta á fundinn.

Verkefnið hófst árið 2016 og er tilgangur fundarins að gefa innsýn inn í markmið, áherslur og fyrstu skref.  Tækifæri gefst til umræðna og áhrifa á verkefnið og er m.a. leitað hugmynda um endanlegt nafn leiðarinnar.

Verkefnastjóri Arctic Coastline Route er Christiane Stadler og mun hún kynna verkefnið. Fundurinn fer fram á ensku.

Fundarstaðir:  

Skagaströnd klukkan 13-14:30 - Kaupfélagshúsið (Einbúastíg 2)

Hvammstangi klukkan 16:30-18 - Selasetrið

Hægt er að tilkynna þátttöku á vef Markaðsstofu Norðurlands eða hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga