Tilkynningar | 22. febrúar 2017 - kl. 09:54
Kynningarfundur í Dreifnáminu

Boðað er til kynningarfundar um Dreifnám í Austur-Húnavatnssýslu, mánudaginn 27. febrúar klukkan 16.30 í húsnæði Dreifnámsins á 2. hæð Kjörbúðarinnar (Samkaupa). Á fundinn mætir Margrét Helga Hallsdóttir, námsráðgjafi FNV ásamt umsjónarmanni Dreifnáms í A-Hún. Íbúar, foreldrar, forráðamenn og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga