Fréttir | 29. maí 2019 - kl. 11:22
Sumaropnun Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi

Sumaropnun Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi hefst frá og með 1. júní næstkomandi, og til og með 20. ágúst. Opið verður mánudaga – föstudaga klukkan 8-21 og laugardaga og sunnudaga klukkan 10-20. Athygli er vakin á því að opið verður á morgun uppstigningardag frá klukkan 10-16 en lokað á föstudaginn, 31. maí vegna námskeiðs hjá starfsfólki.

Sumaropnun:
Mánudaga – föstudaga: 08:00-21:00.
Laugar- og sunnudaga: 10:00-20:00.

Hátíðadagar og námskeið í maí og júní:

Opið 30. maí, uppstigningardag frá kl. 10:00 til 16:00.

Lokað föstudaginn 31. maí vegna námskeiðs hjá starfsfólki.

Opið 9. júní, hvítasunnudag klukkan 10:00-20:00 og 10. júní, annan í hvítasunnu klukkan 08:00-21:00.

Opið 17. júní klukkan 10:00-20:00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga