Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:19 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Skotfélagið Markviss valdi á dögunum skotíþróttafólk ársins en það voru þeir sem náðu bestum árangri á árinu sem er að líða. Fyrir valinu urðu þau Snjólaug M. Jónsdóttir (fyrir árangur í haglagreinum) og Jón B. Kristjánsson (fyrir árangur í kúlugreinum).
Samantekt
Haglagreinar
Snjólaug hóf keppnistímabilið á æfingaferð til Danmerkur í apríl þar sem hún æfði í nokkra daga hjá KFK í Kaupmannahöfn og tók þátt í móti þar sem hún hafnaði í 8 sæti. Hér heima keppti Snjólaug á samtals 6 mótum Skotíþróttasambandsins í þremur greinum þ.e. Ólympísku Skeet, Norrænu Trappi og Compak Sporting.
Hún vann 2 íslandsmeistaratitla í Ólympísku Skeet ásamt því að jafna Íslandsmet kvenna í úrslitum. Snjólaug varði íslandsmeistara titilinn í þessari grein annað árið í röð.Þá varð hún einnig Norðurlandsmeistari kvenna í greininni.
Snjólaug vann einnig íslandsmeistaratitil í kvennaflokki í Norrænu Trappi þriðja árið í röð en Íslandsmótið fór fram á skotsvæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar að þessu sinni.
Þá náði hún góðum árangri í Compak Sporting, vann landsmót á Akureyri í júní og varð í öðru sæti á landsmóti í júlí, einnig á Akureyri. Snjólaug hafnaði svo í þriðja sæti á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í Reykjavík í ágúst.
Snjólaug sinnti margvíslegum störfum fyrir Skotf. Markviss á árinu sem er að líða, leysti af sem þjálfari á nýliðaæfingum og vann ötullega að umhverfismálum á skotsvæði félagsins svo eitthvað sé nefnt.
Kúlugreinar
Jón B. Kristjánsson keppti á 16 mótum á árinu og varð alls þrettán sinnum í verðlaunasæti, þar af vann hann fjögur mót ,hafnaði fimm sinnum í öðru og fjórum sinnum í því þriðja. Helstu keppnisgreinar Jóns eru BR50 (.22LR skotið á 50m færi) og VFS (Varmint for score, stærri rifflar á 100/200m færum)
Í BR50 var í fyrsta sinn keppt með flokka skiptingu á árinu og náði Jón þar afbragðs árangri, vann 2 mót og hafnaði í öðru sæti í öðrum tveim. Að auki náði hann fjórða sæti á Akureyrarmeistaramóti sem fram fór í ágúst. Þá hafnaði hann í fjórða sæti á Íslandsmótinu í BR50 bæði í "Sporter" og "Heavy Varmint" flokkum.
Í VFS mótum keppti Jón í Heavy Varmint flokki og varð í öðru sæti til Skaustmeistara, náði þriðja sæti í Akureyrarmeistara móti og varð fjórði til Íslandsmeistara á sínum persónulega besta árangri í þessari grein.
Auk þess keppti Jón á ýmiskonar öðrum riffilmótum vítt og breitt um landið og var meðal annars í verðlaunasæti á öllum VFS riffilmótum Skotfélags Ólafsfjarðar og þriðji til Ólafsfjarðarmeistara, varð í öðru sæti á VFS sumarmóti Skotfélags Akureyrar í flokki óbreyttra riffla og þriðja sæti í .22LR flokki á 17. Júní móti Skotf. Skotgrund.
Þá hefur Jón starfað ötullega fyrir Markviss, setið í stjórn um árabil, síðustu tvö árin sem formaður félagsins, komið að mótahaldi sem mótstjóri og starfsmaður, sinnt nýliðaþjálfun og æfingastjórn í riffilgreinum, umsjón og dómgæslu fyrir hönd Markviss í hreindýraskotprófum UST, auk vinnu við uppbyggingu á æfingasvæði Markviss.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |