Fréttir | 25. mars 2024 - kl. 14:58
Pósthúsi Hvammstanga verður lokað í júní

Í byrjun júní eru fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu á fjórum stöðum á Norðurlandi. Til stendur að loka pósthúsunum á Hvammstanga, Siglufirði og Dalvík og samstarfspósthúsinu í Ólafsfirði. Nú verða sendingar afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum. Þegar eru komin póstbox á Hvammstanga og Dalvík en í næsta mánuði verða sett upp box í Ólafsfirði og á Siglufirði. Þetta kemur fram á vef Íslandspóst.

Þar er haft eftir Kjartani Flosasyni, forstöðumanni pósthúsa, að lögð sé áhersla á að þróa þjónustu í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. „Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox. Nú er meira að segja líka hægt að póstleggja sendingar í póstbox. Eftir sem áður eru póstboxin opin árið um kring allan sólarhringinn,“ segir Kjartan.

Sjá nánar á vef Íslandspósts.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga