Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Kökukeppni Undirheima á Skagaströnd

Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Í þetta sinn voru eftirfarandi kökur í þremur efstu sætunum:

  • Í 3. sæti sem frumlegasta kakan var sælgætis bátur þeirra Sæþórs Daða og Victors Líndal.
  • Í 2. sæti sem besta bragðið var Mr. Shrek þeirra Alexöndru Dögunar, Arneyjar Nadíu og Láreyjar Möru.
  • Í 1. sætið var ströndin á Ströndinni sem fallegasta kakan sem þær Aníta Ýr og Ylfa Fanndís áttu heiðurinn af. Allir keppendur lögðu sig fram við að töfra fram hinar glæsilegustu kökur.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga