Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Jóhann Örn Finnsson hefur verið ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa á fjölskyldusviði Húnaþings vestra sem auglýst var á dögunum. Tengslafulltrúi mun starfa með ungmennum í sveitarfélaginu í samræmi við áherslur farsældarlaga og er tengiliður þeirra við stjórnkerfi og stofnanir. Hann mun leitast við að aðstoða ungmenni við að finna ástríðu sína og vinna að henni með fjölbreyttu tómstundastarfi og stuðningi, eins og segir á vef Húnaþings vestra. Þá mun hann hvetja ungmenni til þátttöku og verða málsvari þeirra í málum sem þau varða, tala fyrir hugmyndum þeirra í sveitarfélaginu og hvetja til virkni og þátttöku.
Tengslafulltrúi mun einnig vinna í samráði við sveitarfélagið og íbúa að þróun og uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimilinu Hvammstanga sem hugsuð er fyrir fjölbreytt tómstundastarf ungmenna og annarra íbúa sveitarfélagsins.
Jóhann Örn er með BS í íþrótta- og heilsufræði og stundar meistaranám í tómstunda- og félagsmálafræði. Hann hefur reynslu af störfum með ungmennum á vettvangi frítímans sem þjálfari, verkefnisstjóri og leiðbeinandi þar sem reynt hefur á samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Í vetur hefur hann starfað í félagsmiðstöðinni Óríon. Jóhann Örn mun hefja störf á næstunni.
Sjá nánar á vef Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |