Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar. Um er að ræða stöðu löglærðs fulltrúa á Sauðárkróki, innheimtufulltrúi á Ísafirði, tvær stöður innheimtufulltrúa á Blönduósi og starf verkefnastjóra milliríkjainnheimtu á Blönduósi.
Löglærður fulltrúi á Sauðárkróki: Staðan er tímabundin til eins árs. Aðallega er um að ræða verkefni á sviði leyfisveitinga- og vottorða, fjölskyldumála og dánarbúa, auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins. Nýútskrifaðir jafnt sem reynslumiklir lögfræðingar eru hvattir til að sækja um.
Innheimtufulltrúi á Ísafirði: Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að mestu að innheimtu meðlags en að auki annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins.
Tvær stöður Innheimtufulltrúa á Blönduósi: Störfin felast í fjölbreyttum verkefnum sem snúa m.a. að innheimtu sekta og sakarkostnaðar sem og annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins.
Verkefnastjóri milliríkjainnheimtu á Blönduósi: leitum að drífandi og lausnamiðuðum verkefnastjóra til starfa. Um er að ræða nýtt og spennandi starf. Ráðið verður til eins árs en með möguleika á framlengingu að teknu tilliti til mótunar og árangurs af starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí n.k. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. júlí eða fyrr sé þess kostur.
Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknir er að finna á Starfatorgi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |