Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Húni, ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, er kominn út og að þessu sinni 45. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði.
Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal við Sigurrós Jónsdóttur á Kolbeinsá, grein um sameiningu sveitarfélaga í Húnaþing vestra eftir Pétur Vilhjálmsson, sjómerki á Vatnsnesi eftir Þórð Skúlason, frásagnir eftir Hrafnhildi Víglundsdóttur, Þór Magnússon og Benedikt Axelsson auk ljóða eftir Þórdísi Guðjónsdóttur.
Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýðsstarfs USVH.
Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann er einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, Gallerí Bardúsa og Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að panta eintak og/eða gerast áskrifandi með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is
Verð fyrir eintak af Húna í áskrift er 3.500 kr.
Verð fyrir eintak af Húna í lausasölu er 4.500 kr.
Einnig verður rukkað fyrir póstburðargjald.
Heimild: usvh.is
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |