Júlí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |
Fyrri | Núna | Næsti |
![Veðurstofa Íslands](img/logo_vedurstofa.gif)
![Vegagerðin](img/logo_vegagerdin.gif)
Holtavörðuh. | 18:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:18 | 0 | 0°C |
![Vegagerðin](img/vegagerdin_island.gif)
![Nöldrið](img/articles_noldrid.gif)
28. júní 2024 Verum upplýsandiÉg er sólginn í að lesa alls konar fundargerðir, t.d. frá sveitarstjórnum, nefndum og ráðum. Í þeim má finna margt áhugavert og annað minna áhugavert. ::Lesa |
Tvö fyrirtæki í Húnavatnssýslum eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2017. Það eru Fasteignafélagið Borg ehf. á Hvammstanga og Ámundakinn ehf. á Blönduósi. Alls eru framúrskarandi fyrirtæki 2017 868 talsins og hafa þau aldrei verið fleiri. Tólf fyrirtæki á Norðurlandi vestra eru á listanum, þar af tíu á Sauðárkróki. Það er ekki sjálfgefið að komast á listann Framúrskarandi fyrirtæki enda strangar kröfur gerðar af hálfu Creditinfo við matið. Einungis 2,2% fyrirtækja uppfylla þau skilyrði.
Allt frá árinu 2010 hefur Creditinfo tekið saman lista yfir fyrirtæki sem mæta ákveðnum skilyrðum um ábyrgan og arðbæran rekstur. Fyrirtæki sem standast umræddar skorður hljóta í kjölfarið nafnbótina „Framúrskarandi fyrirtæki“.
Það sem gerir fyrirtæki framúrskarandi er:
- Ársreikningi skilað á réttum tíma.
- Lánshæfisflokkur er 1-3.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð.
- Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð.
- Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð.
- Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá.
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo.
- Eignir a.m.k. 90 m.kr. árið 2016 og 80 m.kr. 2015 og 2014.
Fyrirtækin 12 á Norðurlandi vestra eru:
Fasteignafélagið Borg ehf. Hvammstanga.
Ámundakinn ehf. Blönduósi.
FISK-Seafood ehf. Sauðárkróki.
Kaupfélag Skagfirðinga svf. Sauðárkróki.
Steinull hf. Sauðárkróki.
Vörumiðlun ehf. Sauðárkróki.
Vinnuvélar Símonar ehf. Sauðárkróki.
Steypustöð Skagafjarðar ehf. Sauðárkróki.
Spíra ehf. Sauðárkróki.
Ó.K. Gámaþjónusta-sorphirða ehf. Sauðárkróki.
Express ehf. Sauðárkróki.
Raðhús ehf. Sauðárkróki.
![Húsfrúin](img/articles_husfruin.gif)
28. júní 2024 Er skrifstofan hrein og fínÖll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og vinnuumhverfið er engin undantekning. Að hafa snyrtilegt t.d. á skrifstofunni er líklegt til að auka ánægju starfsfólks og þar með vinnusemi þess og gæði. ::Lesa |
![Spaugið](img/articles_spaugid.gif)
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |