Fréttir | 20. júní 2024 - kl. 10:58
HIP Fest brúðulistahátíðin á Hvammstanga

Alþjóðlega brúðulistahátíðin, HIP fest, á Hvammstanga verður haldin í fjórða sinn um helgina. Hátíðin er undir listrænni leiðsögn Gretu Clough og skipulögð af Handbendi brúðuleikhúsi. Helgin verður full af sköpunargleði, félagsskap og tærri gleði barna og fullorðinna og boðið verður upp á fjölbreyttar brúðuleiksýningar, vinnusmiðjur og skemmtilegar óvæntar uppákomur um allan bæ fyrir alla fjölskylduna.

Ókeypis er inn á einstaka sýningu á miðnætti á sumarsólstöðum. Fjörgamli maðurinn með vængina stóru er ný leikgerð af þessu víðfræga verki sem er sérstaklega gerð fyrir HIP Fest 2024 af Mike Shepherd og Söruh Wright.

Sýnendur eru meðal annarra:

  • Sofie Krog leikhúsið (Danmörku)
  • Silent Tide í samstarfi við Little Angel Theatre (Bretlandi)
  • Claudine Rivest (Kanada)
  • Coriolis (Úrúgvæ)
  • Studio Damúza (Tékklandi)
  • Rootstock Puppet Co. (Bandaríkjunum)
  • Handbendi Brúðuleikhús (Íslandi)

Vinnustofur, óvæntir viðburðir og brúður á röltinu:

  • Pilkington Props (Íslandi)
  • Þykjó (Íslandi)
  • David Duffy (Bretlandi)
  • Brúðuleikhús Merlín (Grikklandi)
  • Bonnie Kim (Havaí, Bandaríkjunum)
  • Heather Henson's Handmade Puppet Dreams (Bandaríkjunum)

Frumsýningar:

  • Fjörgamli maðurinn með vængina stóru - Silent Tide í samstarfi við Little Angel Theatre (Bretlandi)
  • Búkolla - Rootstock Puppet Co. (Bandaríkin/Ísland)
  • Með vindinum liggur leiðin heim - Handbendi Brúðuleikhús (Ísland)

Nánar um hátíðina má finna á vefnum www.thehipfest.com og á Facebook.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga