Fréttir | 22. júní 2024 - kl. 20:14
Sameining samþykkt í Skagabyggð og Húnabyggð
Tilkynning frá kjörstjórn

Íbúar Skagabyggðar og Húnabyggðar hafa kosið um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna tveggja.  

Niðurstaða kosninganna er eftirfarandi

Í Skagabyggð var kjörsókn 92,5 prósent.

Alls greiddu 62 atkvæði en  67 voru á kjörskrá.

Já við sameiningu sögðu 47

Nei við sameiningu sögðu 15

Auðir og ógildir seðlar voru 0

 

Í Húnabyggð var kjörsókn 37,1 prósent.

Alls greiddu 355 atkvæði en 955 voru á kjörskrá.

Já við sameiningu sögðu 317 .

Nei við sameiningu sögðu 36 .

Auðir og ógildir seðlar voru 2 

Niðurstöður eru birtar með fyrirvara.

 

F.h. kjörstjórnar

Katrín Benediktsdóttir

 

 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga