Júní 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:57 | 0 | 0°C |
28. júní 2024 Verum upplýsandiÉg er sólginn í að lesa alls konar fundargerðir, t.d. frá sveitarstjórnum, nefndum og ráðum. Í þeim má finna margt áhugavert og annað minna áhugavert. ::Lesa |
Afréttir í Húnabyggð hafa verið að opna í vikunni, fyrst í Laxárdal á mánudaginn og á Eyvindarstaðaheiði í gær. Auðkúluheiði opnar í dag, sem og Grímstunguheiði og Haukagilsheiði en þangað er ekki fært að heiðargirðingu eins og er. Á vef Húnabyggðar kemur fram að formenn fjallskiladeild og formaður og varaformaður landbúnaðarnefndar Húnabyggðar hafi komið saman til að fara yfir opnun á afréttum sveitarfélagsins.
Fram kom að gróður sé tilbúinn og fært á allar heiðar, nema á Grímstunguheiði og Haukagilsheiði. Verið sé að vinna í að gera veginn upp á Grímstunguheiði færan, þó ekki sé líklegt að stórir fjárbílar komist þar á næstu dögum. Tilkynnt verður á vef Húnabyggðar þegar vegurinn verður fær.
Þá var farið yfir sleppihólf á Auðkúluheiði og Eyvindarstaðaheiði, sem og í Kirkjuskarði. Vaðið yfir Kirkjuskarðsá hefur verið hreinsað þannig að hægt er að fara með kerrur fram í skarðið. Fram kemur á vef Húnabyggðar að smávægilegar lagfæringar á girðingum hafa verið gerðar en almennt er ekki fært meðfram girðingum og því ekki hægt að ljúka yfirferð á þeim strax. Auk þess er ennþá töluvert frost í jörðu og t.d. ekki hægt að reka niður staura og því er beðið með frekara viðhald þangað til að aðstæður leyfa.
28. júní 2024 Er skrifstofan hrein og fínÖll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og vinnuumhverfið er engin undantekning. Að hafa snyrtilegt t.d. á skrifstofunni er líklegt til að auka ánægju starfsfólks og þar með vinnusemi þess og gæði. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |