Veitt í Blöndu
Veitt í Blöndu
Fréttir | 27. júní 2024 - kl. 15:46
Lifnar yfir laxveiðinni

Búið er að veiða 131 lax sem af er sumri í helstu laxveiðiám Húnavatnssýslna. Flestir laxar hafa veiðst í Miðfjarðará eða 58 laxar, en hún opnaði 15. júní. Vatnsdalsá opnaði 21. júní og hafa veiðst þar 22 laxar. Laxá á Ásum hefur skilað 20 löxum, Blanda 16, Víðidalsá 12 og Hrútafjarðará þremur.

Fylgjast má með veiðitölum sem birtast vikulega á vefnum www.angling.is.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga