Fréttir | 28. júní 2024 - kl. 11:15
Opna Fiskmarkaðs Íslandsmótið í golfi

Opna Fiskmarkaðs Íslands mótið í golfi verður haldið á Háagerðisvelli við Skagaströnd á morgun, laugardaginn 29. júní. Mótið er minningarmót um Karl Berndsen. Keppt verður í punktakeppni með forgjöf, einn  flokkur. Hámarksleikforgjöf karla og kvenna 36. Ræst verður út samtímis á öllum teigum klukkan 10. Nándarverðlaun í boði á þremur brautum. Skráningu líkur klukkan 19 í dag. Mótsgjald er 4.000 krónur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga