Hjólað út um borg og bý í HSB
Hjólað út um borg og bý í HSB
Fréttir | 28. júní 2024 - kl. 15:11
Hollvinasamtök HSB gáfu góða gjöf
Frá Ásdísi Öddu og Angelu sjúkraþjálfurum og Mörtu Karen nema í iðjuþjálfunarfræði

Þann 30. apríl síðastliðinn bættist enn eitt æfingatækið við í endurhæfingaraðstöðu á sjúkra- og dvalardeild sjúkrahússins á Blönduósi.

Um er að ræða rafknúið MOTOmed hjól sem er annað sinnar tegundar á staðnum og nýtist í styrkjandi og liðkandi þjálfun fyrir breiðan hóp skjólstæðinga hússins. Fyrra hjólið, heitir bakstrar og ýmis smærri tæki eru einnig gjöf frá samtökunum.

Fyrir hálfu ári gáfu Hollvinasamtökin sjónvarpsskjá sem er hengdur upp á vegg fyrir framan hjólin. Nú er hægt að hjóla um sveitir og borgir um allan heim en það er til ógrynni af myndböndum á Youtube sem eru sérstaklega gerð til þess að hjóla eftir.

Eftir að skjárinn kom til sögu og hitt hjólið bættist við er mánaðarleg vegalengd sem hjóluð er rúmlega 900 km sem deilast á 10-12 manns.

Hollvinasamtökunum verður aldrei fullt þakkað þann frábæran stuðning sem þau hafa sýnt og viljum við hvetja alla til að skrá sig í samtökin og gera þessa gjafir mögulegar um ókomna tíð.

Kveðja, Ásdís Adda og Angela sjúkraþjálfarar og Marta Karen nemi í iðjuþjálfunarfræði

P.S.

Þið sem viljið skrá ykkur í samtökin hafið samband við Sigurlaugu Þóru Hermannsdóttur, netfang: sillahemm@simnet.is eða í síma: 6806013.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga