Júlí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |
Fyrri | Núna | Næsti |
![Veðurstofa Íslands](img/logo_vedurstofa.gif)
![Vegagerðin](img/logo_vegagerdin.gif)
Holtavörðuh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:31 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:31 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:31 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:31 | 0 | 0°C |
![Vegagerðin](img/vegagerdin_island.gif)
![Nöldrið](img/articles_noldrid.gif)
28. júní 2024 Verum upplýsandiÉg er sólginn í að lesa alls konar fundargerðir, t.d. frá sveitarstjórnum, nefndum og ráðum. Í þeim má finna margt áhugavert og annað minna áhugavert. ::Lesa |
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hafa ákveðið að framlengja samninga ráðuneytanna við FabLab-smiðjurnar á Íslandi um þrjú ár. Samhliða verða framlögin hækkuð um samtals 91 milljón króna á samningstímabilinu, eða úr 324 milljónum í 415 milljónir á næstu þremur árum. Ein FabLab smiðja er á Blönduósi, TextílLab og er hún fyrsta stafræna textílsmiðjan á Íslandi.
Smiðjurnar þjóna annars vegar tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum og hins vegar íbúum, atvinnulífi og frumkvöðlum. Þær eru vettvangur til nýsköpunar og eru búnar tækjum og tólum til þess að gera frumgerðir og efla þekkingu á stafrænni framleiðslutækni. Smiðjurnar lúta alþjóðlegum skilgreiningum um Fab Lab sem tryggir aðgengi almennings, opnunartíma, ákveðin tækjakost og aðferðarfræði.
Samtals mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið styrkja smiðjurnar um 71 milljón á ári, eða samtals 235 milljónir á samningstímabilinu og mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við framhaldsskólana, mun styrkja smiðjurnar um 60 milljónir á ári, eða samtals um 180 milljónir á samningatímabilinu. Auk þess mun HVIN styrkja allar smiðjurnar um 2 milljónir með einskiptisgreiðslu við upphaf samningstímans 2024 sem ætlaðar eru í tækjakaup og uppfærslu tækja- og hugbúnaðar sem og endurmenntun starfsfólks til að tileinka sér nýja tækni.
Samningar við FabLab-smiðjur á Íslandi runnu út um síðustu áramót, en grunnurinn að þeim samningum var lagður með þingsályktun Alþingis frá árinu 2018. Að samningunum um Fab Lab-smiðjurnar hafa staðið háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið, mennta og barnamálaráðuneytið og sveitarfélögin á hverjum stað ásamt ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Ákveðið hefur verið að endurnýja þessa samninga og er unnið að því í samtali við þessa samstarfsaðila, en 11 smiðjur eru styrktar með þessum hætti hringinn í kringum landið. Ráðuneytin hafa lagt mikla áherslu á samstarf við heimamenn á viðkomandi stöðum um fjármögnun og uppbyggingu smiðjanna.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
![Húsfrúin](img/articles_husfruin.gif)
28. júní 2024 Er skrifstofan hrein og fínÖll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og vinnuumhverfið er engin undantekning. Að hafa snyrtilegt t.d. á skrifstofunni er líklegt til að auka ánægju starfsfólks og þar með vinnusemi þess og gæði. ::Lesa |
![Spaugið](img/articles_spaugid.gif)
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |