Júlí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |
Fyrri | Núna | Næsti |
![Veðurstofa Íslands](img/logo_vedurstofa.gif)
![Vegagerðin](img/logo_vegagerdin.gif)
Holtavörðuh. | 22:34 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:34 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:34 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:34 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:34 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:34 | 0 | 0°C |
![Vegagerðin](img/vegagerdin_island.gif)
![Nöldrið](img/articles_noldrid.gif)
28. júní 2024 Verum upplýsandiÉg er sólginn í að lesa alls konar fundargerðir, t.d. frá sveitarstjórnum, nefndum og ráðum. Í þeim má finna margt áhugavert og annað minna áhugavert. ::Lesa |
Laugardaginn 6. júlí næstkomandi klukkan 13 opnar Dóra Sigurðardóttir áhugaverða sýningu í galleríi sínu Listakot Dóru á jörð sinni Vatnsdalshólum. Sýningin er opin á opnunartíma Listakots Dóru klukkan 13-18 alla daga nema mánudaga en sýningin sjálf stendur til 5. september. Sýningin sækir innblástur frá nágrenninu, í Flóabardaga, einn af frægustu bardögum Sturlungaaldar og einu sjóorrustuna sem háð hefur verið við Íslandsstrendur þar sem Íslendingar skipuðu bæði lið.
Þann 25. júní 1244 mættust á Húnaflóa lið Þórðar kakala Sighvatssonar, af ættum Sturlunga og Kolbeins unga Arnórssonar af ættum Ásbirninga. Nú í ár, árið 2024 eru liðin 780 ár frá Flóabardaga og af því tilefni koma ellefu listamenn saman í Listakoti Dóru og sýna verk sín sem eiga skírskotun í þessa frægu sjóorrustu við Íslandsstrendur.
Eftirfarandi 12 listamenn sýna verk sín:
Elísa Ósk Ómarsdóttir
Erla Einarsdóttir
Gudrun Kloes
Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir
Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir
Inese Elferte
Morgan C.B.
Óskar Guðmundsson
Rúnar
Sara Jóna Emilía
Þorgeir Gísli Skúlason
Þóra Einarsdóttir
Margvísleg dagskrá á þjóðlegum nótum verður yfir opnunarhelgina. Klukkan 13:20, laugardaginn 6. júlí mun Hilma Eiðsdóttir Bakken kveða rímur.
Ásgeir Guðrúnarson Hólm verður einnig í Listakoti opnunarhelgi sýningarinnar, 6. og 7. júlí og býður upp á nudd á staðnum. Hægt er að panta tíma hjá honum í gegnum síðu hans á Facebook - "Ásgeir Guðrúnarson Hólm (AF Warwik)".
Kvenfélag Svínavatnshrepps selur kakó og vöfflur á staðnum, á opnunardeginum, laugardaginn 6. júlí.
![Húsfrúin](img/articles_husfruin.gif)
28. júní 2024 Er skrifstofan hrein og fínÖll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og vinnuumhverfið er engin undantekning. Að hafa snyrtilegt t.d. á skrifstofunni er líklegt til að auka ánægju starfsfólks og þar með vinnusemi þess og gæði. ::Lesa |
![Spaugið](img/articles_spaugid.gif)
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |