Tilkynningar | 15. janúar 2021 - kl. 10:56
Okkur vantar garn dokkur og hespur
Frá Félags- og tómstundarstarfi Blönduóss

Ágætu Húnvetningar

Við leitum til ykkar um hvort þið eigið garn dokkur eða hespur sem má vinda upp. Garn dokkur eru undnar upp en við endur vindum þær. Þetta mega líka vera hnyklar (ekki lopi). Það er yndislega kona, hún Herdís Ellertsdóttir, sem styttir sér stundir við að vinda upp bæði heima og í starfinu hjá okkur.

Nú er gott að fara að taka til í garninu sínu og láta vinda það upp. Margar hugmyndir eru í dag til að vinna upp garnið sitt og til dæmis byrja á jóla og afmælisgjöfum tímalega.

Vil ég benda á bókina Íslenskir vettlingar, 25 nýjar útfærslur á gömlum mynstrum af vettlingum, sem eru frá Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Hægt er að fá þessa bók hjá Elínu S Sigurðardóttur í síma 8626147 eða tölvupóst textil@textil.is.

Ef þið viljið leggja okkur lið með því að láta vinda upp garn merkið ykkur pokana eða kassana. Herdís passar vel upp á alla miða sem fylgja dokkunum. Þetta er að skapa henni mikla gleði að fá að eiga við þetta margt smátt gerir eitt stórt.

Senda má mér póst á sisab@blonduos.is hringja í síma 455 4785 eða 452 4553. Ég sæki á 540 svæðinu og skila til baka til ykkar ef þið óskið. Koma með til mín á Urðarbraut 17 eða Þverbraut 1 mán - fimmtud frá kl: 13:00 - 17:00.

Bestu kveðjur til ykkar.
Félags og tómstundastarfið/ Þverbraut 1.
Hlökkum til að sjá ykkur Sísa,Síssú og Vallý.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga