Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 20:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 20:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 20:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 20:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 20:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 20:53 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarstjórnarkosningar fara fram á morgun, 14. maí. Í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps hefst kjörfundur klukkan 10 og lýkur klukkan 20. Í Húnaþingi vestra hefst kjörfundur klukkan 9 og lýkur klukkan 22. Engin kosning fer fram á Skagaströnd þar sem einn listi bauð fram og er sjálfkjörinn og óbundin kosning, persónukjör fer fram í Skagabyggð þar sem enginn framboðslisti kom fram.
Kjörstaður í Húnavatnshreppi verður í Húnavallaskóla að Húnavöllum og kjörstaður á Blönduósi verður í Norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar, gengið er inn frá Melabraut.
Á sama tíma fer fram skoðunarkönnun, meðal íbúa um nýtt nafn á sameiginlegt sveitarfélag Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar.
Atkvæði verða talin í fundarsal Blönduósbæjar að Hnjúkabyggð 33. Yfirkjörstjórn mun hafa aðsetur á sama stað. Hægt er að hafa samband við formann yfirkjörstjórnar, Lee Ann Maginnis, á netfanginu lam@blonduos.is.
Kjörfundur í Húnaþingi vestra verður haldinn í Félagsheimili Hvammstanga. Atkvæði verða talin í Félagsheimilinu Hvammstanga, þar sem kjörstjórnin er staðsett, og hefst talning klukkan 23.
Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Kjósendum er einnig bent á kosningavef innanríkisráðuneytisins: www.kosning.is. Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár - https://skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |