Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Sigraði sinn riðil í Skólahreysti

Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreystis en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga