Tap í fyrsta leik í 2. deild  •   Framkvæmdir hafnar við Flúðabakka  •   Aðalfundur Krabbameinsfélags Austur-Húnavatnssýslu  •   Opinn fundur um Prjónagleðina  •   Kjósa á um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar í júní  •   Auglýst eftir viðburðum á 17. júní og Húnavöku  •   Skuld vegna orgelsins greidd að fullu  •   Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024  •  
Maí 2017 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:51 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:51 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:51 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:51 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:51 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:51 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:25
Kormákur Hvöt hóf leik í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í dag. Mótherjinn var Selfoss og fór leikurinn fram á Jáverk-vellinum á Selfossi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og lítið um færi. Staðan í hálfleik 0-0. Selfoss náði að skora eina mark leiksins í seinni hálfleik og var það eiginlega gegn gangi leiksins. Kormákur Hvöt fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 1-0 fyrir Selfoss.
|
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 17:22
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 6 íbúða raðhúss við Flúðabakka á Blönduósi. Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar í haust. Um er að ræða fyrri áfanga að þessu verkefni en síðar er stefnt að því að byggja þriggja íbúða raðhús á sama reitnum.
|
Tilkynningar | 04. maí 2024 - kl. 17:05
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 13. maí klukkan 18:00 á Apotekarastofunni Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A.-Hún. sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
|
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 11:10
Opinn fundur um Prjónagleðina, sem fram fer helgina 7.-9. júní í sumar, verður haldinn í Ỏsbæ mánudaginn 6. maí klukkan 17. Í auglýsingu um fundinn segir að Húnabyggð taki að þessu sinni beinan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og leggi metnað sinn í að viðburðurinn verði líflegur og áhugaverður fyrir gesti og heimafólk.
|
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:58
Samstarfsnefnd um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Nefndin kom saman á þremur bókuðum fundum, en nefndarmenn höfðu áður skipað verkefnahóp sem falið var að skoða möguleika á sameiningu sveitarfélaganna. Það er álit nefndarinnar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa um sameininguna. Jafnframt leggur nefndin til að henni verði falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
|
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:48
Á vef Húnabyggðar er biðlað til íbúa, fyrirtækjaeigendur og forsvarsmenn félagasamtaka um að viðra hugmyndir um viðburði sem hægt væri að halda á þjóðhátíðardaginn 17. júní næstkomandi og á bæjarhátíðinni Húnavöku, sem haldin verður 18.-21. júlí. „Ef þið eruð með hugmyndir að viðburði eða viljið halda viðburð á Húnavöku eða 17.júní hátíðarhöldunum í sumar, hvetjum við ykkur til að hafa samband,“ segir á vef sveitarfélagsins.
|
Fréttir | 04. maí 2024 - kl. 10:38
Skuld Blönduóskirkju vegna orgelsins í kirkjunni er að fullu greidd. Með samstillti átaki síðustu fjögur ár hefur tekist að gera upp skuldina með fjárframlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, að því er segir á facebooksíðu hennar. Lokahnykkurinn á söfnun fyrir orgelinu voru vortónleikar í kirkjunni 28. apríl síðastliðinn. Fram komu kór kirkjunnar ásamt Eyþóri organista. Tekið var á móti frjálsum framlögum sem runnu til orgelsjóðs kirkjunnar, en fyrir tónleikana var skuldin 400 þúsund krónur.
|
Tilkynningar | 03. maí 2024 - kl. 13:54
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Hægt verður að kjósa víðar en á sýsluskrifstofum innan umdæmisins og verða kjörstaðir nánar auglýstir síðar á vefsíðunni www.kosning.is og í héraðsfréttablöðum.
|
Fréttir | 02. maí 2024 - kl. 22:27
Veiðifélag Vatnsdalsár hélt aðalfund sinn í síðasta mánuði. Þar samþykkti fundurinn einróma nýjan samning við G og P ehf. og er um tímamótasamning að ræða samkvæmt fréttamanni Sporðakasta Morgunblaðsins. Samningurinn er til tíu ára og leigan fyrir laxahluta árinnar hækkar ekki milli ára.
|
Pistlar | 02. maí 2024 - kl. 15:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Áttræður með ellibrag / elds við sterkan hita. Ljái tvo ég lamdi í dag / löðrandi í svita. Fallega Guðný fötin sker / fagrir saumar prýða / en stakkinn handa sjálfri sér / sú kann ekki að sníða. Sigurður í Jörva orti um Guðnýju ljósmóður sem var líka ágætur klæðskeri, en þá fyrri um sig sjálfan. Sigurður Helgason er ekki öðrum líkur, neyðarlegur í vísum sín, hefur kannski ekki verið þjáll í sambúð, en þessa vísu orti hann, þegar hann flutti frá konu sinni á Fitjum:
|
Fréttir | 02. maí 2024 - kl. 11:28
Vonir standa til að á þessu ári hefjist framkvæmdir við uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í Húnaþingi vestra til framleiðslu á skógarplöntum. Einkahlutafélagið Skógarplöntur og verkefnastjóri frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Magnús Barðdal, vinna að verkefninu. Í tengslum við það fór hópurinn í ferð til Svíþjóðar og Hollands á dögunum til að kynna sér aðrar sambærilegar gróðurstöðvar og skoða búnað frá framleiðendum.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 16:41
Sveitarfélagið Skagaströnd og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning vegna styrks, að fjárhæð 15 milljónir, til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Markmið verkefnisins er að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið sem um ræðir var áður fiskvinnsluhús, síðast rækjuvinnsla.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 15:13
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefnið er beiðni Ỏlafs Kristófers Ỏlafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 08:19
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar. Um er að ræða stöðu löglærðs fulltrúa á Sauðárkróki, innheimtufulltrúi á Ísafirði, tvær stöður innheimtufulltrúa á Blönduósi og starf verkefnastjóra milliríkjainnheimtu á Blönduósi.
|
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |